| Höfuðborgarsvæðið | |
| 95 okt | |
| Lægsta verð | 192.30 |
| Meðalverð | 192.70 |
| Dísel | |
| Lægsta verð | 190.30 |
| Meðalverð | 190.67 |
| Landsbyggðin | |
| 95 okt | |
| Lægsta verð | 192.30 |
| Meðalverð | 192.70 |
| Dísel | |
| Lægsta verð | 190.30 |
| Meðalverð | 190.67 |
..
GERUM BÍLINN Í STAND FYRIR SUMARIÐ
- Sparið þúsundir og fylgið ráðleggingum FÍB
Nagladekk bönnuð:
15. apríl – 1. nóvember
Yfir sumartímann er
skylt að aka ekki á negldum vetrardekkjum. Sektir við því að aka á
nagladekkjum á tímabilinu 15. apríl til 1. nóvember er kr. 5.000,-
Ef negldu dekkin eru auk þess að vera enn undir bílnum eftir 15.
apríl, orðin uppslitin eða er skemmd og því háskaleg til aksturs,
þá er heimilt að sekta ökumann um allt að kr. 5.000,- á hvert ónýtt
nagladekk sem undir bílnum er.
Yfirfarið bílinn áður en lagt er af stað í ferðalagið
Það er frumskilyrði að ástand ökutækis sé gott áður en lagt er af stað í ferðalag.
Ef viðgerðar er þörf, þá verður að gera ráðstafanir tímalega. Oft tekur daga eða
vikur að fá tíma hjá bifreiðaverkstæði og einnig getur bið eftir
varahlut tafið enn frekar. Á ferðalögum er bíllinn oftast meira
hlaðinn og vegir misgóðir þannig að álagið er meira en við daglegan
akstur. Bíleigendur geta farið yfir ástand bílsins að hluta
sjálfir en hemla og annan öryggisbúnað á að láta fagmenn athuga.
Hjólbarðar
Hjólbarðar verða að vera í lagi.
Munsturdýpt má ekki vera minni en 1,6 mm. Ef framundan er langt
ferðalag er ekki óeðlilegt að miða við 2-3 mm munsturdýpt til að mæta
hjólbarðasliti á ferðalaginu.
Álag og slit á hjólbörðum eykst í hlutfalli við þyngd farþega og
farangurs. Kannið loftþrýsting hjólbarða og athugið ástand
varahjólbarða. Loftþrýsting þarf að auka ef bifreiðin er mikið
hlaðin, í samræmi við ábendingar í eigendahandbók.
Höggdeyfar
Höggdeyfar gegna mikilvægu hlutverki og
hafa mikið að segja varðandi aksturseiginleika bifreiðarinnar.
Hægt er að framkvæma einfalda athugun á ástandi höggdeyfa. Byrjið
á einu horni bifreiðarinnar og þrýstið honum niður þannig að hann
hreyfist upp og niður. Ef bifreiðin dúar meira en einu sinni upp
og einu sinni niður getur það verið vísbending um lélagan
höggdeyfi. Þegar skipt er um höggdeyfi er ráðlagt að skipta um
báða á sama öxli (báða fram- eða afturhöggdeyfa).
Ljós
Ljósabúnað verður að athuga. Ef
ljósapera fer þá er ráðlagt að skipta einnig út samsvarandi peru á
hinni hliðinni. Hafðu það fyrir reglu að vera alltaf með
ljósaperur í bílnum til skiptana.
Verkfæri og varahlutir
Yfirfarið verkfærasett
bifreiðarinnar. Gott er að smyrja tjakkinn og jafnvel fleiri
verkfæri. Eftirfarandi verkfæri er ráðlagt að hafa í
bílnum: Felgulykil, skiptilykil, átaksstöng, kertalykil,
skrúfjárn, stjörnuskrúfjárn, bittöng, loftþrýstimæli og vasaljós.
Auk ljósapera er gott að hafa algengustu varahluti, svo sem viftureim,
kerti, öryggi, þurrkublöð, einangrunarband, olíu og frostlög. Í
bílnum á alltaf að vera viðvörunarþríhyrningur, sjúkrakassi, dráttartóg
og bensínbrúsi.
Kælikerfi
Kælikerfi hreyfilsins ( vélar ) gegnir
mikilvægu hlutverki og áður en haldið er af stað í ferð verður að ganga
úr skugga um að nægur kælivökvi sé á kerfinu. Ef áfyllingar er
þörf er ráðlagt að blanda vatni og frostlegi í jöfnum hlutföllum saman
(1/1). Frostlög á einnig að nota á sumrin því þá ver hann
kælikerfið gegn ryði.
Rafgeymir
Látið athuga hleðsluhæfi rafgeymis, t.d.
hjá rafgeymaþjónustu. Er nægilegt vatn á rafgeyminum? Vanti
á rafgeyminn þá bætið á hann eimuðu vatni.
Hreinsið póla og leiðslur með fínum sandpappír eða vírbusta.
Viftureim
Kannið ástand viftureimarinnar.
Reimin á rafalnum þarf að vera hæfilega strekkt, ekki þó meir en svo að
hægt sé að sveigja hana til u.þ.b. 1 sm þar sem hún leikur laus.
Smurkerfi, kerti ofl.
Ráðlegt er að skipta um olíu á hreyfli og
olíusíu áður en lagt er af stað í langferð. Loftsíu og kerti á að
skipta um í samræmi við upplýsingar í eigendahandbók bifreiðarinnar.
Þetta getur bifreiðaeigandinn
gert sjálfur
Kannað ástand hjólbarða og hjólbarðaþrýsting
Yfirfarið ljósabúnað
Athugað kælivökva
Kannað ástand og stillingu viftureimar
Athugað vantnsstöðu í rafgeymi
Hreinsað geymasambönd
Smurt hurðalamir o.fl.
Margir geta skipt um olíu, olíusíu, loftsíu og kerti sjálfir
Kannað ástand höggdeyfa
Þetta á fagmaðurinn að
framkvæma
Kanna ástand hemlabúnaðar
Athuga tengsli (kúpplingu)
Vélarstilla
Athuga ástand bensínleiðsla
Kanna stýrisbúnað
Skipta um olíu og síur
Kanna ástand útblásturskerfis
Þvottur
Með reglubundnum þvotti og góðri
umhirðu endist bíllinn mun lengur og verður síður ryði að
bráð.
Byrjið á að spúla bílinn vel. Best
er að nota háþrýstiþvottatæki en einnig er hægt að notast
við vatnsslöngu með bunustilli. Varast ber að nota ekki
of mikinn vatnsþrýsting á lista í kringum glugga.
Æskilegt er að þvo undirvagninn sérstaklega á þeim
landsvæðum þar sem vetrarsöltun er viðvarandi. Spúla þarf
vel þar sem salt og aur geta setið í s.s. undir
brettaköntum og kringum hjól.
Eftir veturinn er nauðsynlegt að
þrífa salt- og tjöruagnir af lakkinu með affitandi
hreinsiefnum. Rétt er að nota þessi efni eingöngu á
þvottaplönum bensínstöðva en þar eiga að vera niðurföll
með skiljum vegna óæskilegra leysiefna. Þegar búið er að
skola vel eftir affitunina er gott að þrífa bílinn með
sápulegi og volgu vatni. Byrjið á toppnum og vinnið ykkur
niður og endið á felgum bílsins. Æskilegt er að skola
bílinn vel og reglulega á meðan á sápuþvottinum stendur.
Gleymið ekki að þrífa vel innan í dyrakörmum og undir
hurðum enda er þar oft hætta á ryði.
Þurrkið bílinn að loknum þvotti með
vaskaskinni eða gúmmísköfu, byrjið að ofan og haldið
niður.
Hreinsun að
innan
Takið yfirmotturnar úr bílnum og
ryksugið bílinn að innan. Á flestum bensínstöðvum eru
góðar og kraftmiklar ryksugur sem viðskiptavinir hafa
aðgang að. Heimilisryksugur eru í flestum tilvikum ekki
ætlaðar til notkunar utanhúss eða þar sem hætta er á
raka. Mikilvægt er að teppi séu ekki blaut eða rök undir
gúmmímottum. Raka verður að þerra upp til að hindra
óæskilega lykt og myglu. Best væri að þurrka undir teppum
en í flestum nýrri bílum er það illframkvæmanlegt. Gott
húsráð er að setja gömul dagblöð undir gúmmímottur og
draga rakan þannig úr teppum.
Þvoið rúður að innan með rúðuhreinsiefni og þrífið mælaborð, hurðarspjöld og annað inni í bílnum með rakri tusku. Hægt er að fríska upp á plast- og vínilhluti með sérstökum glansefnum.
Minni
lakkskemmdir
Lítið steinkast getur valdið
verulegum skemmdum á lakki og orsakað ryð ef ekkert er að
gert. Lakkið er hluti af ryðvörn bílsins og mikilvægt að
gera við minni lakkskemmdir sem fyrst til að fyrirbyggja
ryðskemmdir á seinni stigum. Auðveldast er að gera við
skemmdir sem aðeins hafa skaðað yfirborðslakkið en ekki
náð niður í grunninn. Víða m.a. hjá bílaumboðum og í
bílabúðum er hægt að kaupa rétta lakklitinn og bletta með
pensli í sárin. Ef lakkið er í úðabrúsa er gott að úða
lakki í lok brúsans og draga síðan með pensli. Berið
nokkur þunn lög af málningu yfir skemmdina með mjóum
pensli en forðist að klessa miklu efni í einu. Ef
lakkskemmdin er umfangsmeiri verður að hreinsa laust lakk
og ryð burt úr sárinu td. með sandpappír eða beittum
hníf. Losið ekki meira en þarf því að lakkið frá
framleiðanda verndar bílinn best. Þegar búið er að
hreinsa svæðið þarf að bera ryðvarnargrunn í sárið og
gæta að því að þekja vel. Zinkgrunnur hefur góða
ryðvarnareiginleika. Notið gráan grunn á bíla með ljósu
lakki. Grunnurinn þarf oft um 2 klukkutíma til að þorna
áður en hægt er að bera yfirlakkið á í samræmi við
ráðleggingarnar hér að framan. Mikilvægt er að loka með
yfirlakki sem fyrst þar sem raki getur fljótlega orsakað
tæringu ef ryðgrunnurinn er einn til varnar.
Bónun
Það borgar sig að bóna bílinn
reglulega. Lakkið fær fallegri glansáferð og bónið ver
lakkið skemmdum. Lakkið þolir meira álag og hrindir frá
sér vatni. Auðveldara er að halda bílnum hreinum þar sem
bónið dregur úr viðloðun óhreininda.
Ef lakkið á bílnum er matt getur þurft að fara yfir með massabóni. Bíllinn á að vera hreinn og massabónið er borið á með hringstrokum og nuddað vel. Massabón getur verið erfitt í meðförum og æskilegt að bera aðeins á litla fleti í einu. Á eftir er flöturinn þurrkaður með hreinni tusku þar til gljáinn er kominn fram.
Að bóna bíl er frekar létt verk með tilkomu nýrra og meðfærilegra efna. Í flestum tilvikum er hægt að bera þunnt bónlag á allan bílinn í einu. Bónið þornar á lakkinu og myndar hvíta himnu sem auðvelt er að pússa af. Bónið aldrei í sterku sólarljósi til að forða því að bónið brenni inn í lakkið.
Þessi einföldu ráð og tveir til þrír tímar í vinnu geta sparað verulega í viðhaldi auk þess að bæta samviskuna.
Til baka
-
Senda -
Prentvæn útgáfa -
Deila



Trip Tik
Gerast félagi
Dælulykill
Trip Tik USA
FÍB Aðstoð
Vefverslun
