FÍB FORSÍÐA

Eldsneytisverð
Höfuðborgarsvæðið
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
  
Landsbyggðin
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
Sjá nánar á GSMBensín.is
 

Spurningin
Hvorir eru betri og öruggari ökumenn?
Konurnar eru betri
Karlarnir eru betri

Niðurstaða könnunar

 

Skráninga á póstlista FÍB


Félag Íslenskra Bifreiðaeigenda á Facebook
Fréttir - Eldri fréttir

0.0.0

Tvær hraðamyndavélar í Ölfusið - endurbætur sjálfs vegarins í biðstöðu?

Tvær hraðamyndavélar verða settar upp og gangsettar innan skamms við þjóðveg 1 milli Hveragerðis og Selfoss.  Búið er að setja upp staura og kassa fyrir myndavélarnar sjálfar og eru norskir sérfræðingar væntanlegir til landsins til að setja vélarnar í kassana, tengja þær og stilla að því héraðsfréttablaðið Dagskráin greinir frá.Vegarkaflinn milli Hveragerðis og Selfoss er meðal slysaþyngstu og háskalegustu vega á landinu. Bæði er umferð mikil um veginn, hann talsvert hlykkjóttur og hæðóttur og ráðrúm til framúraksturs því ... Meira »

0.0.0

Bílvél ársins er VW 1,4 TSI - Porsche á bestu nýju vélina 2009

VW 1,4 TSI. Tímaritið Engine Technology International stendur á hverju ári fyrir því að valin er bílvél ársins. Þeir sem velja og útnefna vélar ársins eru 65 sérhæfðir tækniblaðamenn í 32 löndum í öllum heimshornum. Sl. miðvikudag var þetta val kunngjört. Af þeim tólf bílvélum sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni voru ellefu þýskar. Bílvél ársins er TSI 1,4 vélin frá Volkswagen, sem á sínum tíma hlaut viðurkenningu sem besta nýjungin.  Besta nýjungin að þessu sinni varð hins vegar ný ... Meira »

0.0.0

Nýr Alfa Romeo 169 með Chrysler-tækni - og Jeep Panda handa Ameríkönum

Einhvernveginn svona er talið að nýr Alfa Romeo 169 muni líta út þegar hann kemur á markað 2011. Alfa Romeo 166 er nánast óþekktur hér á landi en þetta er talsvert öflugur bíll í svipuðum stærðarflokki og E-Benz en gagnstætt Benzanum er Alfan framhjóladrifin. Orðrómur hefur um skeið verið um nýjan bíl í stað Alfa 166. Hann átti samkvæmt flökkusögunni að verða afturhjóladrifinn og búinn tæknilegum innviðum frá Jaguar. Nú eftir sameiningu Fiat og Chryslers verður ekkert af samstarfinu við ... Meira »

0.0.0

MultiAir - bensínvélatækni frá Fiat - mun meiri orkunýting, minni eyðsla og miklu minni mengun

Þótt Fiatbílar hafi stundum átt misjöfnu gengi að fagna þá verður því varla móti mælt að sumar gerðir Fiatbíla hafa verið afar vel heppnaðar og dugað eigendum sínum vel og lengi, En burtséð frá því hafa Fiatmenn í Torino verið flestum snjallari í hönnun bæði bíla og bílvéla. Þannig kemur samrásarinnsprautunin - Common-Rail fyrir dísilvélar upphaflega frá Fiat, en sú tækni var einfaldlega bylting - allt í einu varð dísilvélin samkeppnisæf að öllu leyti við bensínvélina í fólksbílum ... Meira »

0.0.0

Góður öryggisstaðall vegar er mikilvægasta slysavörnin - meiru skiptir að auka almennt öryggi vegar en að takmarka hraðann á honum

Miðjuskipting í Svínahrauni - ein mesta slysavörnin sem framkvæmd hefur verið í íslenska vegakerfinu. Gæði vegar (hár öryggisstaðall) vegur mun þyngra í umferðaröryggi en það að setja takmarkanir á umferðarhraðann. Með því að bæta vegi og nánasta umhverfi þeirra gæti Svíum tekist að draga um 40 prósent úr umferðarslysum. Þetta kemur fram í nýrri doktorsritgerð sænsks læknis við Karolinsku sjúkrastofnunina í Svíþjóð. Helena Stigson varði doktorsritgerð sína sl. föstudag. Við vinnslu hennar rannsakaði hún alla þá þætti sem komu ... Meira »

Til baka samtals: 1202 - Næstu 5 »

 

    Umferðarstofa   Bílgreinasambandið