FÍB FORSÍÐA

Eldsneytisverð
Höfuðborgarsvæðið
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
  
Landsbyggðin
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
Sjá nánar á GSMBensín.is
 

Spurningin
Hvorir eru betri og öruggari ökumenn?
Konurnar eru betri
Karlarnir eru betri

Niðurstaða könnunar

 

Skráninga á póstlista FÍB


Félag Íslenskra Bifreiðaeigenda á Facebook
Fréttir - Umhverfismál

28.5.2010

Metangasið best – repjuolían verst - nýr samanburður á umhverfisáhrifum lífræns eldsneytis

Hvaða lífrænt eldsneyti er best fyrir umhverfið? Vísindamenn við háskólann í Lundi í Svíþjóð hafa nú borið saman ýmsar tegundir lífræns bílaeldsneytis með tilliti til umhverfisáhrifa og komist að því að metangasið er best. Verst er repjuolía sem notuð er á dísilvélar. Þá var etanól (spíri) ekki sem allra bestur heldur, sem kemur nokkuð á óvart.   Allt eyðist sem af er tekið og það gildir vissulega um olíuna. Því er leitað sem aldrei fyrr að öðrum orkugjöfum til að ... Meira »

18.5.2010

Heilsuvá í bílnum? - óhrein miðstöðvarloftsía getur skaðað heilsu fólksins í bílnum

Vont loft inni í bílum getur verið skaðlegt heilsu fólksins í bílnum og bíltúrinn þannig beinlínis valdið veikindum. Þetta er álit sambands varahlutaseljenda í Noregi sem þar í landi hafa byrjað átak í samvinnu við samtök astma og ofnæmissjúklinga og lækna. Átakið felst í því að vekja athygli fólks á miðstöðvarloftsíum í bílunum og mikilvægi þess að þær séu hreinar og virki eins og þeim er ætlað. Þeir telja að óhreinar síur í loftræstikerfum geti ögrað heilsu fólksins ... Meira »

11.5.2010

Heilsuvá enn talið stafa frá diskahemlum - krabbameinsvaldandi öragnir í bremsurykinu

 Þar til fyrir um tveimur áratugum var asbest  notað í hemlaborða. Svo uppgötvaðist að asbest er stórháskalegt efni og asbestagnir eyðileggi lungu fólks. Önnur efni voru fundin upp í borða og bremsuklossa og reyndar í bremsudiska líka en nú sýnir ný rannsókn á vegum Konunglega sænska tækniháskólans að öragnir frá bremsunum séu skaðlegar heilsunni og skaðlegri en áður var haldið. Því verði nú að leita annarra og síður skaðlegra efna í bremsuklossa og -borða.  Bíleigendur þekkja flestir dökka ryklagið ... Meira »

10.5.2010

Sixt býður upp á rafbíla -rafbílar til leigu í 5 þýskum borgum

Sixt, stærsta bílaleiga Þýskalands, og raforkufyrirtækið RWE hafa tekið höndum saman um leigu á rafmagnsbílum í tilraunaskyni. Um verður að ræða tvær gerðir rafbíla, þ.e. Karabag 500 E, sem er Fiat 500, og Micro-Vett Fiorino E sem einnig er Fiat.  Tilraunaverkefnið hófst 3. maí og stendur í eitt ár. Tilgangurinn er sá að kanna kosti þess að leigja út rafbíla og móttökur viðskiptavina. Fiat rafbílarnir sem Sixth bílaleigan leigir út í nokkrum þýskum borgum.  Til að byrja með verða bílarnir ... Meira »

7.5.2010

Evrópusambandstillaga um hámarkshraða sendibíla - komist ekki hraðar en á 120 km á klst.

Nú liggur fyrir Evrópuþinginu tillaga um að að framvegis verði í sendibílum og léttum vörubílum búnaður sem gerir ómögulegt að aka þeim hraðar en 120 km á klukkustund. Megintilgangur með tillögunni er að draga úr CO2 útblæstri frá umferð flutningabíla.  Þessi tillaga er reyndar ein af allmörgum sem hafa þennan sama tilgang – að draga úr CO2 útblæstri frá umferð atvinnubílanna. En flutningsmenn tillögunnar um innbyggðan hraðatakmarkara segja í greinargerð með frumvarpinu að þessir bílar, þ.e.a.s. sendibílarnir og litlu ... Meira »

Til baka samtals: 17 - Næstu 5 »

 

    Umferðarstofa   Bílgreinasambandið