FÍB FORSÍÐA

Eldsneytisverð
Höfuðborgarsvæðið
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
  
Landsbyggðin
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
Sjá nánar á GSMBensín.is
 

Spurningin
Hvorir eru betri og öruggari ökumenn?
Konurnar eru betri
Karlarnir eru betri

Niðurstaða könnunar

 

Skráninga á póstlista FÍB


Félag Íslenskra Bifreiðaeigenda á Facebook
Fréttir - Almennt

3.9.2010

Chevrolet Cruze - nú líka sem hlaðbakur

Bílaframleiðendur senda nú sem óðast frá sér fréttir og myndir af þeim farartækjum sem þeir hyggjast sýna á Parísarsýningunni sem opnuð verður undir lok mánaðarins. Parísarsýningin og bílasýningin í Frankfurt eru  haldnar til skiptis annað hvert ár og í ár verður það í París sem helstu og merkustu nýjungar í bílaheimi Evrópu koma fyrst fyrir augu bílaáhugafólks. Chevrolet ætlar þar að sýna nýja útgáfu af sínum kóreska Chevrolet Cruze. Cruze hefur verið framleiddur sem stallbakur hingað til, það er ... Meira »

3.9.2010

Nýr Sorento á Íslandi - frumsýning í dag og á morgun, laugardag

ASKJA, umboðsaðili KIA á Íslandi, frumsýnir í dag nýjan Kia Sorento. Sorento jeppinn sem verið hefur vinsæll jeppi um árabil hér á landi hefur nú verið endurnýjaður frá grunni og er í frétt frá umboðinu sagður búa yfir fjölda eiginleika sem koma kröfuhörðustu ökumönnum skemmtilega á óvart. Hann sé þægilegur og rúmgóður jeppi sem fæst bæði fimm og sjö manna.  Þótt fyrri gerð Kia Sorento hafi ekki skort afl er í þennan bíl nú komin ný 197 hestafla dísilvél ... Meira »

2.9.2010

Bosch í reiðhjólin - drifkerfi- rafmótor, drif og geymar fyrir reiðhjól

Á reiðhjólakaupstefnunni Eurobike í Þýskalandi sem nú stendur yfir frumsýndi íhlutaframleiðandinn Bosch heildstætt rafmagnsdrifkerfi fyrir reiðhjól. Margir helstu reiðhjólaframleiðendur heims hafa þegar ákveðið að bjóða upp á búnaðinn í mörgum gerðum reiðhjóla sinna. Hann er fólginn í rafmótor, stýrikerfi, rafhlöðupakka og hleðslubúnaði. Búnaðurinn er sagður virka þannig að  sú tilfinning sem fæst af því að stíga pedalana heldur áfram að vera til staðar eins og í venjulegum reiðhjólum. Þetta kerfi nefnist Bosch e-Bike drive system og er væntanlegt fljótlega ... Meira »

2.9.2010

Samkeppni á rafbílamarkaði - Chevrolet Volt og Nissan Leaf mega vænta harðrar samkeppni við kínverska rafbíla

Fréttavefur Reuters greinir frá því að General Motors ætli að verðleggja nýja og umhverfismilda Chevrolet Volt rafbílinn sinn hóflega á Kínamarkaði. Chevrolet Volt er væntanlegur á Bandaríkjamarkað í byrjun næsta árs og gefið hefur verið út verð á honum þar sem er sannarlega ekki lágt – 41 þúsund dollarar sem er um 8 þúsund dollurum hærra en á Nissan Leaf - ámóta stór bíl - á að kosta. Kevin Wale forstjóri GM í Kína segir við fréttamann Reuters, að ... Meira »

1.9.2010

Porsche stýrishús á Scania trukka? - unnið að aukinni samvinnu Scania og MAN

Sænski vörubílaframleiðandinn Scania ætlar að hanna ný stýrishús fyrir vörubíla í samvinnu við Porsche Engineering. Þetta sjá bílablaðamenn sem enn eitt skrefið á leið Scania undir regnhlíf Volkswagen samsteypunnar. Volkswagen í Þýskalandi er meirihlutaeigandi í Scania (71%) og á nú einnig ráðandi hlut í Porsche og hyggst eignast Porsche að fullu á næsta ári. Frá þessu er greint á fréttavef Reuters. Þróunarstjóri Scania, Per Hallberg, sagði fyrr í vikunni frá hönnunarsamvinnu Scania og Porsche og að stýrishúsin sem um ræddi ... Meira »

Til baka samtals: 280 - Næstu 5 »

 

    Umferðarstofa   Bílgreinasambandið