ESB leggur 2,9 milljarða evru samkeppnissekt á framleiðendur vörubíla

Í janúar 2011 hóf Samkeppnisstofnun Evrópusambandsins rannsókn á meintu ólöglegu verðsamráði fimm stærstu vörubílaframleiðenda Evrópu.  Fyrirtækin sem um ræðir eru Daimler, DAF, Iveco, MAN og Volvo/Renault.  Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að fyrirtækin hafi auk verðsamráðs verið samtaka um að fara svig við reglur um eldsneytissparnað og mengun.  Samráðið er talið hafa staðið yfir í meira en 14 ár.

Í dag tilkynnti Margarethe Vestager samkeppnismálastjóri ESB um 2,94 milljarða evru (tæplega 400 milljarðar króna) sekt á fyrirtækin vegna þessara alvarlegu brota. 

,,Það er óásættanlegt að MAN, Volvo/Renault, Daimler, Iveco og DAF, sem samanlagt framleiða 9 af hverjum 10 miðlungs- og stærri vörubílum í Evrópu, hafi myndað með sér ólögmætan samráðshring (kartel) til að komast undan samkeppni á markaði,” sagði Margarethe Vestager í yfirlýsingu.

Þetta er lang hæsta samkeppnissekt sem lögð hefur verið á fyrirtæki innan ESB en gamla metið var 1,4 milljarðar evra vegna ólögmæts samráðs framleiðenda sjónvarps- og tölvuskjáa frá 2012.

Þýska fyrirtækið MAN sem er hluti af Volkswagen samsteypunni var þátttakandi í þessum samráðshring en komst undan sektum þar sem fyrirtækið tikynnti upphaflega um samráðið til yfirvalda og aðstoðaði við rannsóknina.

Hæsta sektin leggst á Daimler eða 1,01 milljarður evra, DAF (Paccar) á að borga um 753 milljónir evra, Volvo/Renault er sektað um 670 milljónir evra og Iveco á að greiða um 495 milljónir evra.