Glæsileg Mercedes-Benz AMG sýning

Bílaumboðið Askja blæs til sannkallaðrar stórsýningar á Mercedes-Benz bílum um helgina 25.–26. mars kl. 12-16 í Skútuvogi 2. Þar verða sýndir margir glæsilegir Mercedes-Benz bílar í AMG og Plug-In Hybrid útfærslum.

 AMG deild Mercedes-Benz hefur það hlutverk að smíða ofurútgáfur af Mercedes-Benz bílum með bestu aksturseiginleika og mesta afl sem fyrirfinnst í bílum þýska lúxusbílaframleiðandans og hafa aldrei fleiri slíkir bílar verið sýndir undir einu þaki hér á landi en heildarhestöfl sýningarinnar eru tæp 5000 þúsund.

Sex Plug-in Hybrid bílar sem knúnir eru rafmagni og bensíni verða jafnframt á sýningunni ásamt B-Class rafmagnsbílnum.

Aðalstjarna sýningarinnar er hinn magnaði Mercedes-AMG GT en um er að ræða einn glæsilegasta sportbíl sem fluttur hefur verið hingað til lands. Bíllinn er með fjögurra lítra V8 vél sem skilar feykilegu afli eða 476 hestöflum.

Bíllinn þeytist úr kyrrstöðu í hundraðið á aðeins 4 sekúndum. Meðal annarra magnaðra bíla á sýningunni má nefna 4x42 G-Class jeppann sem framleiddur er í takmörkuðu upplagi. Þá verða sportjepparnir stóru GLS 63 AMG og GLE 43 AMG einnig sýndir sem og sportbílarnir C 63 AMG Coupé og C-Class Cabriolet.

Þá verða einnig á staðnum S-Class AMG, V-Class AMG, CLA 250 Sport með AMG pakka ásamt B-Class 250e rafbílnum sem er fyrsti hreini rafbíllinn frá þýska lúxusbíla framleiðandanum sem kemur hingað til lands.