Nýr Micra kynntur á laugardag hjá BL

Nýr, gjörbreyttur og glæsilegur Nissan Micra verður kynntur formlega hjá BL nk. laugardag, 22. apríl, milli kl. 12 og 16.

Nýr Micra var sérstaklega hannaður með þarfir Evrópubúa í huga ólíkt fyrri gerðum sem gerir að verkum að nýi bíllinn er óþekkjanlegur frá fyrri gerðum enda fóru hönnuðirnir slíkum höndum um bílinn utan og innan að hann á fátt eða ekkert sameiginlegt með fyrirrennurum sínum. Hins vegar leynir ættarsvipurinn sér ekki með öðrum nýjum bílum frá Nissan, hvort sem litið er til Pulsar, X-Trail eða mest selda og vinsælasta bíl Nissan, sportjeppans Qashqai.

Fjölmargar samsetningar í boði

Ytra yfirbragð er í senn sérkennandi og sportlegt þar sem öll hlutföll eru eins og best verður á kosið enda er nýi bíllinn bæði stærri og breiðari en fyrri gerðir. Nissan hefur búið Micra ýmsum tæknilausnum sem auka í senn aksturseiginleika, -ánægju og öryggi ökumanns og farþega.

Auk þess veitir Nissan kaupendum Micra nú mjög fjölbreytta möguleika til að hanna samsetningu bílsins í samræmi við eigin smekk, bæði í ytri litasamsetningum og samsetningum farþegarýmis auk þess sem mjög fjölbreytt úrval aukahluta er í boði eins og hægt er að kynna sér nánar í sérstökum bæklingi hjá BL.

Vél, búnaður og verð

BL býður Micra í tveimur meginútfærslum þar sem í báðum tilfellum má velja um 900cc 90 hestafla bensínvél eða 1500cc 90 hestafla dísilvél, í báðum tilfellum við beinskiptan gírkassa. Hins vegar er hægt að velja um þrjár útbúnaðargerðir, grunngerðina Visia+, miðgerðina Acenta og loks Tekna sem er sú gerð sem best er búin frá framleiðanda.

Grunngerðin Visia+ með 900cc, 90 hestafla bensínvélinni kostar kr. 2.190.000. Meðal staðalbúnaðar eru Led-dagljósabúnaður og Halogenaðaljós, viðvörunarkerfi um loftþrýsting í dekkjum, loftkæling, hámarkshraðastilling og neyðarhemlun. Dýrasta útgáfan, Tekna með 1500cc 90 hestafla dísilvélinni kostar kr. 2.890.000. Í þeirri útgáfu er staðalbúnaður mun meiri en í grunngerðinni, m.a. 17“ álfelgur í stað 15” stálfelga, lykillaust aðgengi, bakkmyndavél með bakkskynjurum og fjórum myndavélum sem bjóða upp a 360° útsýni yfir umhverfi bílsins. Þá er Tekna einnig búinn regnskynjara, sjálfvirkri hæðarstillingu á aðalljósum, rafdrifinni aðfellingu útispegla, dökkum afturrúðum, Nissan connect 7“ snertiskjá sem samþættist snjallsímum.

BOSE

Síðast en ekki síst er vert að nefa hljóðkerfið í Micra Tekna sem er frá Bose og búið sex hátölurum sem mynda 360° víðóm í farþegarýminu. Hljóðkerfið í Micra var hið fyrsta sem Bose hannaði sérstaklega í smábíl. Það er búið sex hátölurum, þar af tveimur Ultra-Nearfield™-hátölurum sem staðsettir eru í höfuðpúða ökumanns.

Að lokum má nefna að Tekna er búinn svokölluðum Safety Shield öryggisskyldi frá Nissan sem inniheldur akreinavara, blindhornsaðvörun og nálgunarviðvörun með umhverfisskynjun allan hringinn.