Öflugur Lexus kynntur

Næstkomandi laugardag, 25. mars, gefst tækifæri til að sjá Lexus LC 500h sportbílinn á sérstakri forsýningu hjá Lexus Ísland í Kauptúni 6, Garðabæ.

Bíllinn er fluttur til landsins sérstakega fyrir þessa sýningu sem jafnframt er opnunarsýning í nýjum sýningarsal Lexus.

Salurinn hefur verið innréttaður frá grunni samkvæmt nýjum stöðlum Lexus. Þar er ekkert til sparað svo upplifun viðskiptavina verði eftirminnileg, segir í tilkynnngu vegna vígslunnar.

LC 500h verður aðeins forsýndur þennan eina dag og því er þetta einstakt tækifæri til að sjá þetta nýja flaggskip sportbíladeildar Lexus. Hönnun bílsins er glæsileg og ber verkfræðingum, hönnuðum og handverksmönnum Lexus gott vitni.

Leitast er við að sameina einstaka akstursupplifun sportbíls og þau þægindi sem lúxusbílar Lexus eru þekktastir fyrir.

Bíllinn sem sýndur verður á laugardag er með 3.5l V6 vél og tvíaflrás sem samanlagt skila 359 hestöflum. Þannig búinn er hann 4,7 sekúndur að ná 100 km hraða. Í búnaði tvinnútfærslunnar hefur nýr tvöfaldur 10 hraða gírkassi vakið athygli en þetta er fyrsti bíllinn frá Lexus sem búinn er þessum gírkassa.

LC 500 er einnig fáanlegur með 477 hestafla V8 vél sem kemur honum í 100 km hraða á 4,4 sekúndum.