Til baka
Sonax SX90 Plus Easy Spray
Sonax SX90 Plus Easy Spray

Sonax SX90 Plus Easy Spray

Til á lager
Vörunr.
Verðmeð VSK
FÍB verð 1.592 kr.Fullt verð 1.990 kr.

SX90 PLUS er rétta lausnin á vandamálum við bíla, tómstundaiðju, heimili, vinnu og verkstæði: Losar hluti sem eru ryðgaðir saman eða fastir (t.d. rær, skrúfur og rofa) og veitir vörn gegn endurtekinni tæringu. Gerir lása, lásasýlindera, fjaðrir, málmbrautir og hjól þjál. Eyðir ískri og marri í gluggum, hurðum og lömum. Ver, smyr og verndar viðkvæma hluti í rafmagnsverkfærum, mótorum, gangverki í klukkum og í heimilis- og garðtækjum. Má einnig nota til að þrífa og annast vopn, fíngerð tæki og vélar. Þrífur, ver og smyr til lengri tíma reiðhjóla- og vélarkeðjur sem og lítil tannhjól. Hentar sem snertiúði á kveikjukerfi, ryður burt raka, heldur rafeindarofum hreinum og kemur í veg fyrir lekastraum. Leysir og fjarlægir tjöru, límafganga og verðmiða. Með Easy-Spray: Tvöfalt úðakerfi fyrir hnitmiðaðan og dreifðan úðageisla án þess að skipta um stút. Hægt að úða úr hvaða stöðu sem er.