Dekkjaöryggispakki
Í þessum pakka er:
Munsturdýptarmælir
Loftþrýstingsmælir
4 stk.ventlatappar
Áríðandi er að hafa réttan loftþrýsting í hjólbörðum til að þeir endist vel og virki rétt.
Ágætt að fylgjast með sliti dekkja og kanna hvort þau uppfylli kröfur um mynsturdýpt.
Að sumarlagi á mynsturdýptin að vera að lágmarki 1,6 mm
Mynsturdýpt ræður miklu um veggrip á blautum eða snjóugum vegum og ekki ráðlegt að hafa það minna en 3 - 4 mm.
Sjáðu til þess að loftþrýstingurinn í dekkjunum sé minnst sá sem hann á að vera samkvæmt handbók bílsins og gjarnan ca. 0,2 loftþyngdum hærri þegar kuldin ríkir.
Varan fæst hjá FÍB að Skúlagötu 19.
Póstsendum um land allt.