Loftmælir
Réttur loftþrýstingur í hjólbörðum stuðlar að betra öryggi, hjólbarðarnir endast betur og bíllinn eyðir minna eldsneyti. Þessi handhægi stafræni loftmælir sýnir loftþrýstinginn á LCD skjá , bæði sem PSI (pund á fertommu) og BAR (kíló á fersentimetra).
Sólarsellur veita ´strauminn´ í tækinu
Hægt að nota fyrir bíla, mótorhjól og vörubíla.
Car Point stafrænn loftmælir – helstu þættir
· LCD skjár
· Þægileg hönnun
· Sýnir mælingu í PSI og BAR einingum
· Mælingarsvið: 5-100 PSI, 0,5-7 BAR
Notkunarleiðbeiningar
Þrýstu á On hnappinn á mælinum og bíddu þar til mælirinn sýni 0. Veldu rétta einingu Psi eða Bar, með því að þrýsta á on takkann. Fjarlægðu næst hettuna af loftventlinum og þrýstu síðan stútnum á loftmælinum þéttingsfast á ventilinn, bíddu í 3 sek. Taktu því næst mælinn af ventlinum og lestu mæliniðurstöðuna á skjánum. Ath alltaf skal fara eftir leiðbeiningu framleiðanda um réttan loftþrýsting í dekki. Til að þrífa, notið rakan klút.
Varan fæst hjá FÍB að Skúlagötu 19.
Póstsendum um land allt.