FÍB FORSÍÐA

Eldsneytisverð
Höfuðborgarsvæðið
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
  
Landsbyggðin
95 okt 
Lægsta verð192.30
Meðalverð192.70
Dísel 
Lægsta verð190.30
Meðalverð190.67
Sjá nánar á GSMBensín.is
 

Spurningin
Hvorir eru betri og öruggari ökumenn?
Konurnar eru betri
Karlarnir eru betri

Niðurstaða könnunar

 

Skráninga á póstlista FÍB


Félag Íslenskra Bifreiðaeigenda á Facebook
Fréttir - Neytendamál

2.9.2010

Bensín með íblönduðum „Octane Booster“ - kom til landsins 19. apríl

Morgunblaðið greindi frá því í frétt í morgun að bensínfarmur sem landað var á Íslandi sl. vor hefði verið mengaður af vafasömu íblöndunarefni sem valdið hefði gangtruflunum í bílum. Hið óæskilega efni nefnist octane booster en íblöndunarefni með sama nafni hafa lengi fengist í bílavöruverslunum og á bensínstöðvum hér á landi. Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að íblöndunarefnið hafi sest á kerti bíla sem þá hefðu misst virkni sína að einhverju leyti með þeim afleiðingum að gangtruflana í bílunum ... Meira »

13.8.2010

Hraðasektir án ástæðu? -sænskar hraðamyndavélar sagðar mæla vitlaust

Skekkja í mælingum sænskra hraðamyndavéla á vegum úti kann að hafa valdið því að þúsundir ökumanna í Svíþjóð hafi fengið hraðasektir að ástæðulausu segir Dagens Nyheter. Sérfræðingur um radartækni sem jafnframt er doktor í rafmagnsfræðum sem blaðið ræðir við um málið gagnrýnir hvernig  vélarnar voru stilltar en benda líka á að ýmsar ytri aðstæður geti valdið skekkju í mælingunum svo munar fleiri kílómetrum á klukkustund. Meðal þess sem haft getur áhrif á mælingarnar er hvass vindur og titringur frá ... Meira »

11.8.2010

Var þetta þá allt tóm vitleysa? - NHTSA finnur enga galla í eldsneytisgjöf Toyotabíla

Bandaríska umferðaröryggisstofnunin NHTSA hefur gefið út fyrstu bráðabirgðaskýrsluna um þau slys sem urðu á Toyotabílum vegna þess að inngjöfin festist í botni að sögn ökumannanna. Í 35 af 58 tilfellum sem rannsökuð hafa verið er niðurstaðan sú að ökumenn stigu aldrei á bremsuna. Svo virðist því sem ökumennirnir hafi ruglast á fetlum og stigið á bensínið í stað bremsunnar. Ef marka má nýjustu fréttir af þessu máli virðist því sem öryggisstofnunin National Highway Traffic Safety Administration, hafi ekki tekist ... Meira »

10.8.2010

Opel innleiðir „æviábyrgð“ á bílum - 160 þús. kílómetra verksmiðjuábyrgð í allt að 15 ár

Þann 25, maí í vor lengdi Opel framleiðsluábyrgð á nýjum Opelbílum úr þremur í fimm ár og/eða 100 þúsund kílómetra. Og nú ætlar Opel (og Vauxhall í Bretlandi) bráðlega að bæta um betur og veita ábyrgð á nýjum bílum allt að 160 þúsund kílómetra akstri, en með ákveðnum undantekningum og fyrirvörum þó.  Með þessu fetar Opel svipaða slóð og Hyundai, Kia og Ford hafa áður markað í ábyrgðarmálum hjá sér. Hjá Opel og Vauxhall er þetta hugsað þannig að ... Meira »

28.7.2010

Vegaaðstoð FÍB í tæp 60 ár -þjónustuvakt FÍB allan sólarhringinn um verslunarmannahelgina í síma 5-112-112

Líkt og undanfarin 57 ár verður FÍB með þjónustuvakt um verslunarmannahelgina fyrir bíleigendur, en félagið hóf að veita þessas þjónustu árið 1953. Hjálparþjónusta FÍB miðast við að aðstoða bíleigendur á ferðalagi sem þurfa á þjónustu bílaverkstæðis að halda eða vantar varahlut. FÍB aðstoðarbílar verða á fjölförnustu leiðum og umboðsmenn félagsins og samstarfsaðilar um land allt eru í viðbragðsstöðu. Aðstoð á vegum Helstu bifreiðaumboð landsins hafa um áratugi góðfúslega lánað FÍB viðbótar-aðstoðarbíla sem eru á vegum landsins ... Meira »

Til baka samtals: 104 - Næstu 5 »

 

    Umferðarstofa   Bílgreinasambandið