Ástand vega að og frá Grindavík kannað

Vegagerðin hefur kannað ástand vega sem liggja að Grindavík og færrar leiðar niður á höfnina í bænum í samráði við almannavarnir. Byrjað var á því að kanna ástand veganna með dróna.

Starfsmenn Vegagerðarinnar könnuðu að því loknu skemmdir og sprungur og lögðu mat á vegakerfið. Skoðunin fór fram í því skyni að velja bestu leið fyrir flutning á rafstöð, varaaflsstöð, Landsnets niður að höfninni.

Eftir skoðun á Suðurstrandarvegi og leiðinni inn í Grindavík að austanverðu er ljóst að margar sprungur hafa myndast í átökum síðustu sólarhringa. Eldri viðgerðar sprungur hafa opnast og víkkað og nýjar myndast. Ljóst er að þungaflutningar fara ekki þá leið en mestu skemmdirnar í þessari lotu hafa orðið í austanverðum bænum.

Vegagerðarmenn skoðuðu einnig Grindavíkurveg, Norðurljósaveg og Nesveg og ljóst eftir þá skoðun að minni breytingar hafa orðið þar og því fært fyrir þungaflutninga þá leið. Strax var farið af stað með að flytja varaaflsstöðina þá leið til að koma rafmagni á Grindavík.