Ekkert banaslys í umferðinni hefur orðið á árinu

http://www.fib.is/myndir/Car_crash.jpg


Ekkert banaslys hefur orðið í umferðinni á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs.  Það eru vissulega gleðileg tíðindi og það sem allir stefna að. Á sama tíma á síðasta ári höfðu fjórir látist í umferðarslysum og ef ástandið væri eins og í fyrra, þegar banaslys í umferðinni varð tólfta hvern dag að meðaltali væru þau orðin 6 talsins.  

Í frétt frá Umferðarstofu segir að það sé mikilvægt er að þakka ökumönnum fyrir þeirra framlag til að staðan sé þetta hagstæð.  Einnig sé ástæða til að vekja athygli á skipulagsbreytingum hjá lögreglu og auknu eftirliti, sem án efa hefur í för með sér fækkun alvarlegra slysa.  Markmið umferðaröryggisáætlunar stjórnvalda er, að hér á landi verði ekki fleiri banaslys og alvarleg slys í umferðinni en í þeim löndum  þar sem ástandið er best og Íslendingar vilja bera sig saman við.

Mikilvægir þættir til að þessi þróun haldi áfram sé að virða hraðatakmarkanir, muna eftir að nota öryggisbúnað í bílum og umfram allt að nota hann rétt og gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir akstur fólks undir áhrifum áfengis og annarra vímuefna.  

Árið 2006 var næstversta ár varðandi banaslys á Íslandi í aldarfjórðung.  Slíkt getur siðmenntuð þjóð ekki sætt sig við og því skiptir miklu máli að allir landsmenn taki höndum saman og leggi sig fram til að auka öryggi sitt og annarra vegfarenda.