Fjórði hver bíll var 100% rafbíll 2020

Á síðasta ári var fjórði hver nýskráður fólksbíll hreinn rafbíll. Árið var algjört metár en árið áður var hlutdeild hreinna rafbíla aðeins tæp 8%. Aðeins Noregur skráir hlutfallslega fleiri nýja rafbíla í heiminum öllum, en Ísland.

Framboð hreinna rafbíla hefur aukist jafnt og þétt og var í upphafi árs hægt að velja vel yfir 20 ólíkar gerðir rafbíla frá 15 framleiðendum. Fjölmargar nýjar og spennandi tegundir frá þekktum bílaframleiðendum munu koma inn á markaðinn á þessu ári sem ætti að hafa enn frekari áhrif á sölutölur rafbíla. Bílgreinasambandið gerir ráð fyrir að alls seljist 11.000 fólksbílar á árinu 2021. Miðað við að hlutdeild hreinna rafbíla haldist óbreytt ættu að bætast um 2.750 rafbílar við bílaflotann á árinu.

Í tilkynningu frá ON kemur fram að fyrirtækið sé gríðarlega spennt að halda uppbyggingunni áfram til að mæta þörfum rafbílaeiganda og þessum ört stækkandi markaði. Fyrirhugað er að setja niður enn fleiri 150kW stöðvar þannig að fólk nái að ferðast um land allt áhyggjulaust um það hvar sé hægt að hlaða.

„Nýju 150kW hraðhleðslurnar eru bylting fyrir nýjustu rafbílana á markaði, við erum að þrefalda hleðsluhraðann frá fyrstu 50kW hraðhleðslunum sem við settum upp. Við erum þegar búin að setja upp 3 staðsetningar í Reykjavík, við Bæjarháls, Suðurfell og Miklabraut og einnig úti á landi í Víðigerði, Varmahlíð og Akureyri“ segir Hafrún.

ON vinnur jafnframt að metnaðarfullu verkefni með Reykjavík og Garðabæ þar sem settar verða hátt á annað hundruð hleðslur á staði í eigu sveitarfélaganna með það að markmiði að fleiri hafi aðgang að hleðslu í grennd við heimili sitt.