Nýr Mercedes-Benz EQA frumsýndur

Nýr Mercedes-Benz EQA verður frumsýndur hjá Bílaumboðinu Öskju á morgun laugardag kl 12-16 í sýningarsal Mercedes-Benz að Krókhálsi 11. Á sama tíma verður vetrarsýning Kia haldin að Krókhálsi 13.

EQA hefur öðlast miklar vinsældir sökum nýrrar og áberandi SUV-yfirbyggingar, kraftmikils rafdrifs og forvirks leiðsögukerfis með Electric Intelligence. Nú verður EQA enn eftirsóknarverðari þökk sé nýju útliti, aukinni drægni sem er allt að 528 km, ásamt nýjum og gagnlegum eiginleikum. Ýmsar nýjungar sem sést hafa í stærri gerðum bíla eru nú sífellt algengari í smærri bílum, t.d. MBUX-kerfi með endurbættri raddstýringu og uppfærðum akstursaðstoðarkerfum, tengi- og hleðslutækni og úrval hljóðupplifana sem hægt er að velja úr.

Uppfært útlit EQA er nútímalegt og framúrskarandi með skýrt og áberandi yfirbragð sem undirstrikar sportlega hönnun. Afturhluti EQA einkennist af nýjum LED afturljósum sem renna saman í samfelldan ljósaborða. Nýtt grill með svartri klæðningu með gljásvörtu stjörnumynstri vekur einstaklega mikla athygli.