Opnað fyrir umferð um nýjan Suðurlandsveg

Opnað var fyrir umferð um nýjan Suðurlandsveg milli Hveragerðis og Kotstrandakirkju um helgina. Opnunin verður aðeins á hluta vegarins til að byrja með. Þannig verður einungis önnur akrein af tveimur í austurátt opin fyrir umferð.

Við brú yfir Gljúfurholtsá, verður umferð í vesturátt hleypt á aðra af akreinunum í austur, en verður svo beint yfir á rétta akrein í vesturátt, rétt vestan við brúnna. Á vegarkaflanum verður umferðarhraði dreginn niður í 50 km/klst. á meðan á framkvæmdum stendur en þó verður, til að byrja með, hámarkshraði 30 km/klst. í austurenda við Gljúfurholtsá.

Það er von Vegagerðarinnar að vegfarendur sýni þessum hraðatakmörkunum skilning og þolinmæði. Einnig er þess óskað að farið verði eftir öllum vegamerkingum á svæðinu og er sérstök áhersla lögð á að vegfarendur fari eftir hraðatakmörkunum og fylgi öllum gátskildum.

Áformað er að halda vegaframkvæmdum í Ölfusinu áfram og leggja 2-1 veg alla leið til Selfoss. Útboð á því verkefni er í undirbúningi.