Orka náttúrunnar tekur í notkun hraðhleðslu á Hvolsvelli

Orka náttúrunnar opnaði í síðustu viku hlöðu með hraðhleðslu fyrir rafbíla við þjónustustöð N1 á Hvolsvelli. Næstu hlöður ON verða á þjónustustöðvum N1 í Vík og á Kirkjubæjarklaustri. Frá því ON tók forystu um uppbyggingu innviða fyrir rafbíla á árinu 2014 hefur fjöldi þeirra hér á landi fertugfaldast.

Það var Bergur Þorri Benjamínsson, formaður Sjálfbjargar, sem tók hlöðuna formlega í notkun. ON hefur kappkostað að hlöðurnar séu sem aðgengilegastar fyrir fatlaða rafbílaeigendur.

Bjarni Már Júlíusson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, sagði við opnunina suðurleiðina óðum vera að opnast fyrir rafbílaeigendum sem fjölgi nú sem aldrei fyrr hér á landi.

 „Við hjá ON ætlum að varða hringveginn með hlöðum og nú eru þær orðnar 17 talsins þar sem fljótvirkar hraðhleðslur standa rafbíleigendum til boða. Á næstunni opnum við í Vík og á Klaustri og undirbúningur við Jökulsárlón er langt kominn,“ segir Bjarni Már.

Hlöður ON eru nú 17 talsins og verða væntanlega orðnar fleiri en 20 fyrir árslok. Þær fyrstu voru settar upp í Reykjavík á árinu 2014. Frá þeim tíma hefur rafbílum sem nýtt geta hlöðurnar fjölgað úr 94 í 3.684 í ágústlok 2017. Þetta er fertugföldun í fjölda þessara bifreiða sem sífellt fleiri ökumenn kjósa til að komast á milli staða.