Sparaksturkeppni FÍB og Atlantsolíu

Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri og Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri ræsa fyrsta bílinn. Rásmarkið er á bensínstöð Atlantsolíu við Húsgagnahöllina, Bíldshöfða. Þaðan verða svo bílarnir ræstir einn af öðrum með tveggja mín. millibili.

24 fólksbílar eru skráðir til keppni. Þeir eru af öllum stærðum og gerðum og enginn eldri en árgerð 2012. Keppnisleiðin að þessu sinni er frá Reykjavík til Akureyrar með hálftíma hvíldarhléi að Gauksmýri í Húnaþingi. Ökuleiðin er 381,6 km og verða keppendur að ljúka henni á fimm klst. og 10 mín að meðtöldu hálftíma hvíldarhléi að Gauksmýri. Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu er að þessu ætlað að vekja athygli á ferðalögum Íslendinga um eigið land og sýna fram á það að með yfirveguðu og góðu aksturslagi er hægt að komast ansi langt á eldsneytislítranum.

http://www.fib.is/myndir/Start.jpg
Keppnisbílarnir verða ræstir með tveggja mín-
útna millibili frá bensínstöð Atlantsolíu við
Bíldshöfða. Búast má við að úrslit liggi fyrir
milli kl. 16.00 og 16.30 í dag, föstudag.

Hægt er að nálgast úrslitin hér

Bílarnir verða nefnilega með SAGA leiðsögutæki frá íslenska fyrirtækinu Arctic Track. SAGA tækið og hugbúnaður þess, sem hvorttveggja er alíslenskt, skráir allar hreyfingar hvers bíls um sig í keppninni og þegar keppni er lokið mun keppnisstjórn geta séð allan feril bílsins, hvernig honum var ekið, hve hratt og hversu langan tíma hver áfangi ferðarinnar tók. Keppendum er skylt að aka í hvívetna samkvæmt umferðarlögum og -reglum og kosta öll frávik, svosem eins og óeðlilega hægur akstur og hraðakstursbrot, refsistig sem umreiknuð verða samkvæmt reglum keppninnar í viðbótar eldsneyti sem bætist við rauneyðslu bílsins.  

Að keppninni lokinni verður sýning á keppnisbílunum og árangurinn kynntur milli kl. 17 - 19 á Glerártorgi, Kakó, Súkkulaði og blöðrur. 

Íslenski bílaflotinn er um þessar mundir orðinn einn sá elsti í Evrópu, en meðalaldur bíla er orðinn rúmlega 12 ár. Þessi hái aldur er að mörgu leyti óæskilegur, ekki síst út frá umhverfissjónarmiðum þar sem 10-15 ára bílar eyða margir hverjir allt að 25% meira eldsneyti en nýjustu bílar svipaðrar stærðar og þyngdar. Þá er mengun frá elstu bílunum allt að 90% meiri en frá þeim nýju. Þar til viðbótar eru nýjustu bílar flestir hverjir mun öruggari fyrir þá sem í bilum ferðast, heldur en eldri bílar. 

 Sparaksturskeppni FÍB og Atlantsolíu er á öðrum þræði ætlað að vekja athygli á framannefndu. Henni er einnig ætlað að vekja athygli á því að með góðu aksturslagi má spara verulega eldsneyti og að ferðalög Íslendinga um eigið land þurfa ekki að setja fjárhag fjölskyldna í uppnám. Sparakstursökulag krefst þess að athygli ökumanns sé óskipt við aksturinn. Rannsóknir sýna það að þeir ökumenn sem einbeita sér að akstrinum eru miklu ólíklegri til að lenda í umferðarslysum og -óhöppum.