Umferðin aldrei mælst meiri í febrúar á höfuðborgarsvæðinu

Umferðin um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 6,7 prósent í febrúar. Aldrei hefur mælst meiri umferð í febrúar. Frá áramótum hefur umferðin aukist um rúm fimm prósent að því er fram kemur í tölum frá Vegagerðinni.

Talsverð aukning varð í umferð á milli febrúarmánaða 2023 og 2024, yfir þrjú lykil mælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu, en aukningin nam samtals 6,7%.

Mest jókst umferð um snið á Vesturlandsvegi ofan Ártúnsbrekku eða um 7,5% en minnst um mælisnið á Reykjanesbraut við Dalveg í Kópavogi eða um 6,1%. Umferðin á höfuðborgarsvæðinu hefur aldrei verið meiri, í febrúar, yfir umrædd mælisnið.

Nú hefur uppsöfnuð umferð aukist um 5,2%, það sem af er ári, miðað við sama tímabil á síðasta ári. Mest var ekið á fimmtudögum en minnst á sunnudögum, í nýliðnum mánuði. Hlutfallslega jókst umferð mest á sunnudögum, milli febrúar mánaða 2023 og 2024, en minnst varð aukningin á mánudögum.