Verksamningur um þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar

Undirritaður hefur verið verksamningur sem snýst um þriðja áfanga Arnarnesvegar, milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar. Um er að ræða nýbygginu vegar á um 1,9 km kafla, auk þess sem byggð verða brúarmannvirki og undirgöng. Undirbúningur hefst strax í þessari viku og búist er við að framkvæmdir hefjist um miðjan ágúst.

Markmiðið með framkvæmdinni er að auka umferðaröryggi og stytta ferðatíma, auk þess að létta verulega á umferð um Vatnsendaveg en í Kópavogi, austan Reykjanesbrautar, búa hátt í 15 þúsund manns. Vegkaflinn mun bæta til muna viðbragðstíma fyrir neyðaraðila í efri byggðum Kópavogs og Reykjavíkur.

Framkvæmdirnar felast í nýbyggingu Arnarnesvegar frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut með tveimur hringtorgum, vegbrú yfir Breiðholtsbraut og einum ljósastýrðum vegamótum ásamt breikkun Breiðholtsbrautar frá Jaðarseli að Vatnsendahvarfi.

Í verkinu eru tvenn undirgöng og tvær brýr fyrir gangandi og hjólandi, stofnstígar og stígatengingar. Auk þess tilheyrir verkinu lagning nýrrar hitaveituæðar Veitna, Suðuræðar II. Einnig verður unnið við hljóðdeyfigarða og hljóðveggi, regnvatnslagnir, snjóbræðslulagnir, settjörn, regnbeð, götulýsing og lagnir fyrir upplýsingakerfi Vegagerðarinnar.

Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Reykjavíkur, Kópavogs, Betri samgangna ohf., Veitna og Mílu. Verkið er fjármagnað af Samgöngusáttmálanum, sem gerður var 2019 milli ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu, þar sem markmiðið er m.a. að stuðla að auknu umferðaröryggi, hagkvæmum, greiðum og skilvirkum samgöngum á höfuðborgarsvæðinu með jafnri uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.