Vistvæn bílasýning

Laugardaginn 4. nóvember verður haldin sýning á vistvænum bílum í húsakynnum Heklu Laugavegi. Vörumerki Heklu, Audi, Volkswagen, Skoda og Mitsubishi, eru leiðandi í tækniframförum, hönnun og þróun fjölbreyttra aflgjafa og Hekla býður í dag upp á tólf vistvæna bíla.

Þetta breiða úrval endurspeglast í sölu vistvænna bíla hjá fyrirtækinu sem leiðir markaðinn með 60% markaðshlutdeild og sölu á yfir 1000 vistvænum bílum það sem af er árs.

Þegar rætt er um vistvæna bíla er átt við hreina rafbíla sem ganga eingöngu fyrir rafmagni, tengiltvinnbíla sem ganga fyrir raforku og bensíni eða dísil og tvíorkubíla sem ganga fyrir metani og bensíni.

Fimm tengiltvinnbílar verða til sýnis á vistvænum dögum. Það eru Audi A3 e-tron, Audi Q7 e-tron, Mitsubishi Outlander PHEV,  Volkswagen Golf GTE og Volkswagen Passat GTE. Af hreinum rafbílum eru það Volkswagen e-up! og e-Golf og metanbílanir eru fimm, Skoda Octavia G-Tec, Volkswagen up!, Golf og Caddy og Audi A3 g-tron sem er frumsýningastjarna dagsins.

Hann er fyrsti metan- og bensínbíllinn frá Audi sem kemur til landsins en byrjað er að taka niður pantanir á A4 g-tron og A5 g-tron sem væntanlegir eru til landsins á næsta ári.

Kappakstursbíll Team Spark verður á svæðinu en Team Spark er þróunarverkefni við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Markmið verkefnisins er að þróa, hann og smíða rafknúinn kappakstursbíl frá grunni og keppir liðið á alþjóðlegri hönnunar- og kappaksturskeppni erlendis, Formula Student.