Sláandi verðmunur - ódýrast í Costco þegar verð á ákveðnum bílavörum er skoðað

Sláandi verðmunur á bílavörum.
Sláandi verðmunur á bílavörum.

Vöruúrval fyrir bifreiðaeigendur er þó nokkuð í Costco í Kauptúni í Garðabæ en verslunin opnaði sl. mánudag. Sama dag vann FÍB verðkönnun á dekkjum sem vakti mikla athygli en í þeirri athugun kom í ljós að verð á Michelin dekkjum hjá Costco er töluvert ódýrara en almenningi hefur boðist fram að þessu.

FÍB heldur verðkönnunni áfram bifreiðaeigendum til leiðbeiningar og kannar verð á mótorolíum, rafgeymum og á gluggahreini. Sú athugun leiðir í ljós að þessar vörur eru mun ódýrari í Costco en hjá öðrum söluaðilum þegar nákvæmlega sömu vörur eru bornar saman í könnunni.

Upplýsingarnar um verðin hjá Costco fengust í versluninni við Kauptún í Garðabæ. Upplýsingar um verð á olíunni hjá N1 eru teknar af heimasíðu fyrirtækisins. Verð á rafgeymum byggir á upplýsingum af heimasíðu verslunarinnar Kemi á Tunguhálsi í Reykjavík og á Rain-X Glerhreinsi hjá AB varahlutum og Bílanaust.

Sláandi verðmunur er á umræddum vörum á má í því sambandi nefna allt að 177,% verðmunur er á Mobil 1 0W 40 mótorolíu. Þá er 227,4% munur á Rain-X glerhreinsi þar sem hann er dýrastur og er verðmunurinn á Bosch rafgeymum allt að 79%.

Til að njóta þessara kjara hjá Costco kostar ársaðild fyrir einstaklinga 4.800 krónur en fyrirtækjaaðild kostar 3.800 fyrir árið.

Hér að neðan geta bifreiðaeigendur séð niðurstöðuna í samanburðinum sem gerður var. 

 

 Hér að neðan má sjá verð og myndir af vörum í verðkönnun: 

Mobil 1 0W 40 mótorolía

Mobil 1 0W 40 mótorolía
4 lítarar kr. 10.425.-
(lítraverð kr. 2.606.-)

 
Mobil 1 0W 40 mótorolía
5 lítrar kr. 4.699.- 
(Lítraverð kr. 940.-)  

 

 

Castrol Edge 5W 30 mótorolía

 


Castrol Edge 5W 30 mótorolía
4 lítrar kr. 12.142.- 
(Lítraverð kr. 3.035.-)  

 
Castrol Edge 5W 30 mótorolía
4 lítrar kr. 5.799.- 
(Lítraverð kr. 1.450.-)  

 

 

 Rain-x Glerhreinsir (+ rain repellant) 500 ml

 


Rain-x Glerhreinsir (+ rain repellant) 500 ml
1 brúsi verð kr. 1.989. 


Rain-x Glerhreinsir (+ rain repellant) 500 ml
1 brúsi á kr. 2.290.- 

 

 
Rain-x Glerhreinsir (+ rain repellant) 500 ml
2 brúsar á kr. 1.399.- 

 

 

Bosch rafgeymir 60AH 12V


Bosch rafgeymir 60AH 12V
Verð á kr. 17.890.- 
Verð af heimasíðu Kemi

 

 
Bosch rafgeymir 60AH 12V
Verð á kr. 9.999.- 

  

Bosch rafgeymir 74AH 12V


Bosch rafgeymir 74AH 12V
Verð á kr. 20.890.- 
Verð af heimasíðu Kemi

 
Bosch rafgeymir 74AH 12V
Verð á kr. 12.499.-