FÍB viðbótarvernd vegna kaskó- og framrúðutjóna

trygg-fib-hs-1

FÍB viðbótarvernd tryggir þér endurgreiðslu eigináhættu komi til kaskó- eða framrúðutjóns.

FÍB félagar fá kaskó- og framrúðuvernd saman á sér kjörum.

  • 16.800 kr. á ári fyrir bíla 0–10 ára
  • 18.800 kr. á ári fyrir bíla 11–15 ára

Viðbótarverndin gildir einnig fyrir bílaleigubíla erlendis.

Hámarks endurgreiðsla eigináhættu er:

  • 146.500 kr. vegna kaskótjóns
  • 72.500 kr. vegna framrúðutjóns

FÍB viðbótarvernd er unnin í samstarfi við Tryg Forsikring A/S og miðlað af Tryggingamiðlun Íslands.

Í stuttu máli: Þú lendir í tjóni, greiðir eigináhættu, sendir inn staðfestingu og færð eigináhættuna endurgreidda.  

FÍB félagar geta sótt um Viðbótarvernd FÍB í gegnum umsóknareyðublað neðst á síðunni eða haft samband við skrifstofu FÍB í síma 4149999.

Kaskóvernd

Hvað er tryggt?

FÍB viðbótarvernd vegna kaskó og framrúðu tjóna er viðbót við þær bifreiðartryggingar sem þú hefur hjá þínu tryggingafélagi, en kemur ekki í stað þeirra trygginga.

Tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð sem tryggingafélagið þitt innheimtir ef þú lendir í bótaskyldu tjóni á tryggðu ökutæki.
Ennfremur er tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð á bílum sem leigðir eru í gegnum viðurkenndar bílaleigur erlendis.
Trygging er gerð til eins árs og endurnýjast sjálfkrafa á ári hverju.
Komi til bótaskylds tjóns sækir þú bætur til þíns tryggingafélags sem mun krefjast greiðslu á sjálfsábyrgð. Þegar tryggingafélagið hefur lokið vinnslu við bótakröfu þína tilkynnir þú tjónið til okkar, sendir afrit af tjónauppgjörinu og við endurgreiðum þér sjálfsábyrgðina, að hámarki 146.500 kr.

FÍB Vernd er unnin í samstarfi við Tryg Forsikring A/S og miðlað af Tryggingamiðlun Íslands.

Tryg er stærsta tryggingafélag Danmerkur, þriðja stærsta í Svíþjóð og fjórða í Noregi. Tryg byggir á gömlum grunni en elsti partur Tryg var stofnaður 1731 í kjölfar brunans mikla í Kaupmannahöfn 1728, sem lagði borgina nær í rúst.
Tryg tryggir 5.3 milljónir viðskiptavina og er fjórði hver Dani tryggður hjá Tryg.

Afhverju Kaskó viðbótarvernd?

  • Sjálfsábyrgð tryggingafélaga við tjón á ökutækjum er á bilinu 130 til 170 þúsund krónur.
  • Af því endurgreiðir Kaskó viðbótarvernd að hámarki 146.500 kr.
  • Svo lengi sem þitt tryggingafélag bætir tjónið þá mun Kaskó viðbótarvernd endurgreiða sjálfsábyrgðina.
  • Einfalt að sækja um tryggingu og enn einfaldara að sækja bætur.

Nánar um tryggingu

Vátrygging: Kaskó viðbótarvernd

Virkni: 12 mánaða vátryggingarvernd sem greiðir að hluta eða öllu sjálfsábyrgðina sem fellur á viðskiptavin við kröfu úr kaskótryggingu bifreiðar.

Tryggingin gildir einnig um bíla sem viðskiptavinur leigir erlendis,
sé hann leigðurí gegnum löglega bílaleigu.

Vátryggingarfjárhæð: Allt að 146.500 kr. fyrir stakt tjón en aðeins er hægt að gera eina kröfu á hverju vátryggingartímabili.

Gildissvið: Tryggingin minnkar eða greiðir að fullu þá sjálfsábyrgð sem eigandi bifreiðarinnar þarf að greiða við kröfu úr kaskótryggingu, þar á meðal vegna:

  • Innbrots/þjófnaðar
  • Tjóns vegna skyndilegra, utanaðkomandi atvika
  • Elds
  • Annarra ófyrirsjáanlegra atburða sem falla undir almenna vátryggingarvernd

Tryggingin bætir ekki:

  • Ef ökumaður ökutækisins er ekki með gilt ökuskírteini
  • Tjón vegna aðgerða eða aðgerðarleysis, hvort sem um vilja verk er að ræða eða stórkostlegt gáleysi, þar á meðal ólöglegar athafnir.
  • Skemmdir sem koma til vegna ölvunar og/eða neyslu lyfja/eiturlyfja eða annarra vímugjafa.
  • Skemmdir á bílaleigubíl sem leigður er innanlands
  • Skemmdir á bílaleigubíl sem er eldri en 10 ára
  • Skemmdir á sérstökum bílaleigubíl, t.d. sportbíl, limosínu, utanvega- eða fjallabílum

Ofangreint er ekki fullt yfirlit yfir gildissvið tryggingarinnar. Fulla lýsingu á vátryggingarvernd, þar á meðal takmarkanir og reglur um bætur má finna í viðeigandi vátryggingarskilmálum.

Tryggingamiðlun Íslands (TMÍ) sér um sölu og alla þjónustu FÍB Verndar.
TMÍ hefur miðlað vátryggingum frá árinu 1997 og hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki í rekstri samfellt frá 2010. Fyrirtækið hefur verið samstarfsaðili Tryg í 20 ár. Skilmálar á heimasíðu TMÍ

Framrúðuvernd

Hvað er tryggt?

Tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð sem tryggingafélagið þitt innheimtir ef þú lendir í bótaskyldu framrúðutjóni á tryggðu ökutæki.
Ennfremur er tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð á bílum sem leigðir eru í gegnum viðurkenndar bílaleigur erlendis. 

FÍB viðbótarvernd framrúðu tjóna er viðbót við þær bifreiðartryggingar sem þú hefur hjá þínu tryggingafélagi, en kemur ekki í stað þeirra trygginga.

Trygging er gerð til eins árs og endurnýjast sjálfkrafa á ári hverju.


Komi til bótaskylds tjóns sækir þú bætur til þíns tryggingafélags sem mun krefjast greiðslu á sjálfsábyrgð. Þegar tryggingafélagið hefur lokið vinnslu við bótakröfu þína tilkynnir þú tjónið til okkar, sendir afrit af tjónauppgjörinu og við endurgreiðum þér sjálfsábyrgðina, að hámarki 72.500 kr.

FÍB viðbótarvernd er unnin í samstarfi við Tryg Forsikring A/S og miðlað af Tryggingamiðlun Íslands.

Tryg er stærsta tryggingafélag Danmerkur, þriðja stærsta í Svíþjóð og fjórða í Noregi. Tryg byggir á gömlum grunni en elsti partur Tryg var stofnaður 1731 í kjölfar brunans mikla í Kaupmannahöfn 1728, sem lagði borgina nær í rúst.
Tryg tryggir 5.3 milljónir viðskiptavina og er fjórði hver Dani tryggður hjá Tryg.

Afhverju Framrúðu viðbótarvernd?

Sjálfsábyrgð tryggingafélaga við tjón á ökutækjum er um 50 - 100 þúsund krónur.
Af því endurgreiðir Framrúðu Vernd að hámarki 72.500 kr.
Svo lengi sem þitt tryggingafélag bætir tjónið þá mun Framrúðu viðbótarvernd endurgreiða sjálfsábyrgðina.

Nánar um tryggingu

Vátrygging: Framrúðu viðbótavernd

Virkni: 12 mánaða vátryggingarvernd sem greiðir að hluta eða öllu sjálfsábyrgðina sem fellur á viðskiptavin við kröfu úr ábyrgðartryggingu bifreiðar vegna tjóns á framrúðu.
Tryggingin gildir einnig um bíla sem viðskiptavinur leigir erlendis, sé hann leigður í gegnum löglega bílaleigu.

Vátryggingarfjárhæð: Allt að 72.500 kr. fyrir stakt tjón en aðeins er hægt að gera eina kröfu á hverju tryggingartímabili.

Gildissvið: Tryggingin minnkar eða greiðir að fullu þá sjálfsábyrgð sem eigandi bifreiðarinnar þarf að greiða við kröfu úr ábyrgðartryggingu vegna tjóns á  framrúðu.

Tryggingin bætir ekki:

  • Ef ökumaður ökutækisins er ekki með gilt ökuskírteini
  • Tjón vegna aðgerða eða aðgerðarleysis, hvort sem um viljaverk er að ræða eða stórkostlegt gáleysi, þar á meðal ólöglegar a thafnir.
  • Skemmdir sem koma til vegna ölvunar og/eða neyslu lyfja/eiturlyfja eða annarra vímugjafa.
  • Skemmdir á bílaleigubíl sem leigður er innanlands
  • Skemmdir á bílaleigubíl sem er eldri en 10 ára
  • Skemmdir á sérstökum bílaleigubíl, t.d. sportbíl, limosínu, utanvega- eða fjallabílum

Ofangreint er ekki fullt yfirlit yfir gildissvið tryggingarinnar. Fulla lýsingu á vátryggingarvernd, þar á meðal takmarkanir og reglur um bætur má finna í viðeigandi vátryggingarskilmálum.

Tryggingamiðlun Íslands (TMÍ) sér um sölu og alla þjónustu FÍB Verndar.
TMÍ hefur miðlað vátryggingum frá árinu 1997 og hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki í rekstri samfellt frá 2010. Fyrirtækið hefur verið samstarfsaðili Tryg í 20 ár. Skilmálar á heimasíðu TMÍ

SÆKJA UM
VIÐBÓTARVERND FÍB
Upplýsingablað
Kaskóvernd
  Upplýsingablað 
Framrúðuvernd