FÍB Vernd brúar bilið
Kaskó og Framrúðu Vernd FÍB er viðbót við þær bifreiðartryggingar sem þú hefur hjá þínu tryggingafélagi, en kemur ekki í stað þeirra trygginga.
Trygging er gerð til eins árs og endurnýjast sjálfkrafa á ári hverju.
Komi til bótaskylds tjóns sækir þú bætur til þíns tryggingafélags sem mun krefjast greiðslu á sjálfsábyrgð. Þegar tryggingafélagið hefur lokið vinnslu við bótakröfu þína tilkynnir þú tjónið til okkar, sendir afrit af tjónauppgjörinu og við endurgreiðum þér sjálfsábyrgðina, að hámarki 146.500 kr.
FÍB Vernd er unnin í samstarfi við Tryg Forsikring A/S og miðlað af Tryggingamiðlun Íslands.
Tryg er stærsta tryggingafélag Danmerkur, þriðja stærsta í Svíþjóð og fjórða í Noregi. Tryg byggir á gömlum grunni en elsti partur Tryg var stofnaður 1731 í kjölfar brunans mikla í Kaupmannahöfn 1728, sem lagði borgina nær í rúst.
Tryg tryggir 5.3 milljónir viðskiptavina og er fjórði hver Dani tryggður hjá Tryg.
Kaskóvernd
Hvað er tryggt?
Tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð sem tryggingafélagið þitt innheimtir ef þú lendir í bótaskyldu tjóni á tryggðu ökutæki.
Ennfremur er tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð á bílum sem leigðir eru í gegnum viðurkenndar bílaleigur erlendis.
Afhverju Kaskó Vernd?
- Sjálfsábyrgð tryggingafélaga við tjón á ökutækjum er á bilinu 130 til 170 þúsund krónur.
- Af því endurgreiðir Kaskó Vernd að hámarki 146.500 kr.
- Svo lengi sem þitt tryggingafélag bætir tjónið þá mun Kaskó Vernd endurgreiða sjálfsábyrgðina.
- Einfalt að sækja um tryggingu og enn einfaldara að sækja bætur.
Nánar um tryggingu
Vátrygging: Kaskó Vernd
Virkni: 12 mánaða vátryggingarvernd sem greiðir að hluta eða öllu sjálfsábyrgðina sem fellur á viðskiptavin við kröfu úr kaskótryggingu bifreiðar.
Tryggingin gildir einnig um bíla sem viðskiptavinur leigir erlendis,
sé hann leigðurí gegnum löglega bílaleigu.
Vátryggingarfjárhæð: Allt að 146.500 kr. fyrir stakt tjón en aðeins er hægt að gera eina kröfu á hverju vátryggingartímabili.
Gildissvið: Tryggingin minnkar eða greiðir að fullu þá sjálfsábyrgð sem eigandi bifreiðarinnar þarf að greiða við kröfu úr kaskótryggingu, þar á meðal vegna:
- Innbrots/þjófnaðar
- Tjóns vegna skyndilegra, utanaðkomandi atvika
- Elds
- Annarra ófyrirsjáanlegra atburða sem falla undir almenna vátryggingarvernd
Tryggingin bætir ekki:
- Ef ökumaður ökutækisins er ekki með gilt ökuskírteini
- Tjón vegna aðgerða eða aðgerðarleysis, hvort sem um vilja verk er að ræða eða stórkostlegt gáleysi, þar á meðal ólöglegar athafnir.
- Skemmdir sem koma til vegna ölvunar og/eða neyslu lyfja/eiturlyfja eða annarra vímugjafa.
- Skemmdir á bílaleigubíl sem leigður er innanlands
- Skemmdir á bílaleigubíl sem er eldri en 10 ára
- Skemmdir á sérstökum bílaleigubíl, t.d. sportbíl, limosínu, utanvega- eða fjallabílum
Ofangreint er ekki fullt yfirlit yfir gildissvið tryggingarinnar. Fulla lýsingu á vátryggingarvernd, þar á meðal takmarkanir og reglur um bætur má finna í viðeigandi vátryggingarskilmálum.
Tryggingamiðlun Íslands (TMÍ) sér um sölu og alla þjónustu FÍB Verndar.
TMÍ hefur miðlað vátryggingum frá árinu 1997 og hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki í rekstri samfellt frá 2010. Fyrirtækið hefur verið samstarfsaðili Tryg í 20 ár.
Framrúðuvernd
Hvað er tryggt?
Tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð sem tryggingafélagið þitt innheimtir ef þú lendir í bótaskyldu framrúðutjóni á tryggðu ökutæki.
Ennfremur er tryggð endurgreiðsla á sjálfsábyrgð á bílum sem leigðir eru í gegnum viðurkenndar bílaleigur erlendis.
Afhverju Framrúðu Vernd?
Sjálfsábyrgð tryggingafélaga við tjón á ökutækjum er um 50 - 100 þúsund krónur.
Af því endurgreiðir Framrúðu Vernd að hámarki 72.500 kr.
Svo lengi sem þitt tryggingafélag bætir tjónið þá mun Framrúðu Vernd endurgreiða sjálfsábyrgðina.
Nánar um tryggingu
Vátrygging: Framrúðuvernd
Virkni: 12 mánaða vátryggingarvernd sem greiðir að hluta eða öllu sjálfsábyrgðina sem fellur á viðskiptavin við kröfu úr ábyrgðartryggingu bifreiðar vegna tjóns á framrúðu.
Tryggingin gildir einnig um bíla sem viðskiptavinur leigir erlendis, sé hann leigður í gegnum löglega bílaleigu.
Vátryggingarfjárhæð: Allt að 72.500 kr. fyrir stakt tjón en aðeins er hægt að gera eina kröfu hvá verju átryggingartímabili.
Gildissvið: Tryggingin minnkar eða greiðir að fullu þá sjálfsábyrgð sem eigandi bifreiðarinnar þarf að greiða við kröfu úr ábyrgðartryggingu vegna tjóns frá amrúðu.
Tryggingin bætir ekki:
- Ef ökumaður ökutækisins er ekki með gilt ökuskírteini
- Tjón vegna aðgerða eða aðgerðarleysis, hvort sem um viljaverk er að ræða eða stórkostlegt gáleysi, þar á meðal ólöglegar a thafnir.
- Skemmdir sem koma til vegna ölvunar og/eða neyslu lyfja/eiturlyfja eða annarra vímugjafa.
- Skemmdir á bílaleigubíl sem leigður er innanlands
- Skemmdir á bílaleigubíl sem er eldri en 10 ára
- Skemmdir á sérstökum bílaleigubíl, t.d. sportbíl, limosínu, utanvega- eða fjallabílum
Ofangreint er ekki fullt yfirlit yfir gildissvið tryggingarinnar. Fulla lýsingu á vátryggingarvernd, þar á meðal takmarkanir og reglur um bætur má finna í viðeigandi vátryggingarskilmálum.
Tryggingamiðlun Íslands (TMÍ) sér um sölu og alla þjónustu FÍB Verndar.
TMÍ hefur miðlað vátryggingum frá árinu 1997 og hefur verið á lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki í rekstri samfellt frá 2010. Fyrirtækið hefur verið samstarfsaðili Tryg í 20 ár.
English
Gerast Félagi
Eldsneytisvaktin

