107% verðmunur á bílatryggingum

Mjög mikill verðmunur er á hæsta og lægsta verði fyrir bílatryggingar í nýjustu könnun Verðlagseftirlits ASÍ. Í könnuninni kemur fram að 107% munur er á milli hæsta og lægsta tilboðsins í ábyrgðartryggingu og kaskótryggingu.

Lægsta verðið var hjá VÍS, 129.559 kr. fyrir ábyrgðartryggingu og 43.631 kr. fyrir kaskótryggingu, samtals 170.190 krónur. TM var með hæsta tilboðið, 261.061 kr. fyrir ábyrgðartryggingu og 90.800 fyrir kaskótryggingu, samtals 351.861 krónur.

Könnunin var gerð í samstarfi við bifreiðaeigenda sem fékk tilboð í lögboðnar ökutækjatryggingar ásamt bílrúðutryggingu og kaskótryggingu fyrir árgerð 2009 af VW Polo.

VÍS með lægsta verðið en TM það hæsta

Öllum bifreiðaeigendum er skylt að kaupa ábyrgðartryggingu fyrir ökutæki sitt ásamt slysatryggingu ökumanns og eiganda.

Í könnuninni var því gerður verðsamanburður á þessum tryggingum auk bílrúðu- og kaskótryggingar en kaskótryggingin veitir tryggingarvernd ef hinn tryggði veldur sjálfur tjóni á eigin bifreið vegna áreksturs og veltu eða ef tjón verður vegna innbrots, þjófnaðar eða skemmdarverka.

Nánar um könnunina má nálgast hér