Fréttir

Þýsk og ítölsk stjórnvöld grípa til aðgerða sem draga úr loftmengun

Borgaryfirvöld í Róm á Ítalíu hafa ákveðið að banna notkun dísilknúna bifreiða í miðborginni frá 2024 að telja í baráttunni við mengun í borginni sem aukist hefur mjög á síðustu árum. Fleiri borgir í Evrópu eru að skoða að fara þessa sömu leið og Rómarborg og banna þá í fyrstu dísilbíla frá miðborgunum.

Opnað fyrir ábendingar frá almenningi um ný umferðarlög

Opnað hef­ur verið fyr­ir ábend­ing­ar frá al­menn­ingi um drög að nýj­um um­ferðarlög­um, en sam­kvæmt drög­un­um er um viðamikl­ar breyt­ing­ar að ræða. Markmið með heildarendurskoðun umferðarlaga er að stuðla enn frekar að umferðaröryggi með því að bregðast við þeirri þróun sem orðið hefur á samgöngum og samfélaginu í heild á undanförum árum.

FÍB lagði áherslu á bætt viðhald vegakerfisins á fundi með ráðherra

Ástand á götum á höfuðborgarsvæðinu og víða um land hefur verið töluvert til umfjöllunar síðustu daga. Í leysingunum að undanförnu koma götur illa undan vetri og á mörgum stöðum er ástandið mjög slæmt. Getur verið að viðhald á götum hafi ekki verið sem skildi og að stjórnvöld séu að fá þetta núna í andlitið.

Íbúar sendi ábendingar um holur

Starfsmenn Reykjavíkurborgar vilja bregðast skjótt við holum sem myndast í malbiki sem getur gerst í rysjóttri tíð eins og verið hefur undanfarið. Viðgerðir á holum sem valdið geta slysi eða tjóni á ökutækjum hafa hæsta forgang og gert er við þær eins skjótt og mögulegt er eða sett viðeigandi varúðarskilti. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Kínverski bílaframleiðandinn Geely eignast stærsta hlutinn í Daimler

Gríðarlegur uppgangur er hjá kínverska bílaframleiðandanum Geely um þessar mundir. Geely á nánast allt hlutaféð í Volvo en þar á bæ eru menn hvergi hættir. Nú hafa Kínverjarnir eignast stærsta hlutinn í Daimler sem framleiðir eins og kunnugt er Marcedes Benz.

Slitlag á vegum víða illa farið og bílar orðið fyrir tjóni

Fjölmargar bílar urðu fyrir skemmdum vegna djúpra holu sem myndaðist á vegkafla í Mosfellsbæ á Vesturlandsvegi í vikunni. Bifreiðaeigendur leituðu aðstoðar á dekkjaverkstæðið í Mosfellsbæ vegna skemmda á felgum og dekkjum. Starfsmenn Vegagerðarinnar hófu í gær viðgerðir á umræddum holum og ætti viðunandi ástand að vera á svæðinu núna. Fréttir hafa borist af fleiri holum sem gert hafa bílstjórum skráveifu í leysingunum síðustu daga.

Umferðarundur við Geirsgötu - myndband

Eins og vegfarendur hafa tekið eftir þá hafa lengi staðið yfir framkvæmdir vegna uppbyggingar á lóðum milli Tryggvagötu og Hörpu í Reykjavík. Á framkvæmdatímanum hafa verið umtalsverðar umferðartafir á Sæbraut, Kalkofnsvegi, Geirsgötu og við Lækjargötu. Hluti þessara framkvæmda tengdist byggingu nýs bílakjallara undir nýja Geirsgötu og þá var umferðinni beint tímabundið um hjáleið á Geirsgötu.

Finnar prófa rafræn ökuskírteini

Finnar hafa alltaf verið framarlega á tæknisviðinu og þeir eru langt í frá að draga undan í þeim efnum. Ef allt gengur að óskum geta Finnar sem viljað fengið viðbótarökuskírteini sem app í farsímann sinn síðar á þessu ári . Ákveðinn hópur Finna hefur tekið þátt í þessari tilraun frá því í fyrrasumar með góðum árangri.

Fleiri vilja rafmagnsbíla

Samkvæmt nýrri bílakaupakönnun MMR hefur fjöldi þeirra sem kjósa helst að eignast rafmagnsbíl aukist verulega á síðustu árum. Samkvæmt könnuninni voru 42% þeirra sem hugðust kaupa sér nýjan bíl (ekki notaðan) innan þriggja ára sem vildu helst að bíllinn væri knúinn rafmagni sem aðal orkugjafa.

FÍB óskar eftir tilboðum frá olíufélögunum

Nýlega sendi Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, bréf út til allra íslensku olíufélaganna þar sem óskað var eftir tilboðum um sérkjör af eldsneyti og rekstararvörum bifreiða.