12 bílar valdir í úrslit í bíl ársins

12 bílar hafa verið valdir í úrslit í valinu á bíl ársins 2018 en það er Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) sem sér um valið á Bíl ársins í ellefta skiptið. Alls 30 bílar voru tilnefndir í valinu.

Bílunum var skipt í fjóra flokka eftir stærð en þrír efstu bílarnir í hverjum flokki komust í úrslit.

Í flokki smábíla komust Suzuki Swift, Nissan Micra og Kia Rio í úrslit. Í flokki millistórra bíla komust Honda Civic, Hyundai Ionic og Hyundai i30 í úrslitin.

Í flokki stórra fólksbíla komust BMW 5, Peugeot 3008 og Volvo V90 Cross Country í úrslit og í flokki jeppa og jepplinga komust Skoda Kodiaq, Volvo XC60 og Renault Koleos í úrslit. 

Sá bíll sem valin verður Bíll ársins hlýtur verðlaunagripinn Stálstýrið. Í fyrra var Renault Talisman valinn Bíll ársins. Tilkynnt verður um val á Bíl ársins 2018 síðar í mánuðinum.