16 hleðslustöðvar í níu sveitarfélögum á Vestfjörðum

Orkubú Vestfjarða og e1 hafa undirritað samstarfssamning varðandi umsjón og þjónustu fyrir allar hleðslustöðvar Orkubúsins á Vestfjörðum. Orkubú Vestfjarða hóf vegferðina fyrir orkuskiptin á Vestfjörðum árið 2017 með fyrstu hleðslustöð fyrirtækisins og í dag rekur fyrirtækið net hleðslustöðva víðsvegar um Vestfirði en alls eru þetta 16 stöðvar í 9 sveitarfélögum.

e1 hefur síðustu ár unnið að þróun opins markaðstorgs fyrir hleðslustöðvar með það að markmiði að tengja rafbílaeigendur og eigendur hleðslustöðva með einföldum hætti og efla þannig uppbyggingu innviða fyrir rafbíla.

Samstarfsaðilarnir segja spennandi tímar framundan á Vestfjörðum og eru ánægðir með þessa mikilvægu vegferð orkuskipta  á svæðinu.

Hleðslustöðvar Orkubús Vestfjarða má finna á eftirfarandi stöðum:

Bjarkarlundi, Flókalundi, Hólmavík, Hvítanesi, Ísafirði, Patreksfirði, Reykjanesi, Tálknafirði og Þingeyri.