182 hleðslustæði tekin í notkun hjá ON í febrúar

Stæðin sem staðsett eru á 32 stöðum í Reykjavík og 4 stöðum í Garðabæ eru fyrir tvo til sex rafbíla í hleðslu. Hleðslunum verður komið fyrir í samstarfi við sveitarfélögin tvö við almenn bílastæði í þeirra eigu; við skóla, verslanir, sundlaugar og menningarstofnanir að því fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Með þessari innviðauppbyggingu  er tekið stórt skref til að efla orkuskipti og koma til móts við þarfir allra rafbílaeigenda, þ.m.t. einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

Til að geta nýtt sér hleðslurnar þurfa rafbílaeigendur að vera með ON lykil. Verðið er 25kr/kWst og 0,5 kr/mín. Viðskiptavinir sem eru einnig með heimili sitt í viðskiptum hjá ON fá 20% afslátt af verðskrá.

Þegar eru um helmingur hleðslustöðvanna komnar upp og gert er ráð fyrir að klára uppsetningar á öllum staðsetningum á næstu vikum.

Hægt er að skoða staðsetningar hleðslustöðvanna á heimasíðu ON og í hleðsluappinu (ON Hleðsla).