200 milljónum varið í framkvæmd í ár vegna nýs Hringvegar í Hornafirði

Auk landeigenda Erna Hreinsdóttir  og Reynir Gunnarsson frá Vegagerðinni og Reynir Karlsson frá AM P…
Auk landeigenda Erna Hreinsdóttir og Reynir Gunnarsson frá Vegagerðinni og Reynir Karlsson frá AM Praxis.

Í vikunni voru fyrstu samningarnir við landeigendur vegna nýs Hringvegar í Hornafirði undirritaðir en í ár verða settar 200 milljónir króna í framkvæmdina. Framkvæmdaleyfi hefur verið gefið út. Við þessa framkvæmd fækkar einbreiðum brúm á Hringveginum um þrjár.

Sveitarfélagið Hornafjörður hefur þegar veitt Vegagerðinni framkvæmdaleyfi og 200 milljónum króna hefur verið ráðstafað til að hefja framkvæmdir í ár.

Nýr Hringvegur um Hornafjörð mun liggja á milli bæjanna Hólms og Dynjanda. Vegamót verða við núverandi Hringveg á móts við Hólm, tengingar að Brunnhóli og Einholti aðlagaðar nýjum vegi, tengivegur verður meðfram Djúpá, gerður verður varnargarður austan Hornafjarðarfljóta, ný vegamót verða við Hafnarveg og önnur vegamót við núverandi Hringveg austan Hafnarness. Jafnframt verða útbúnir áningastaðir fyrir vegfarendur. 

Fjórar brýr verða í fyrirhuguðum framkvæmdum; yfir Djúpá, Hornafjarðarfljót, Austurfljót og Bergá. Þannig fækkar einbreiðum brúm á Hringvegi um þrjár.