37% FÍB afsláttur af Britax barnabílstólum

FÍB hefur fyrir hönd félagsmanna náð frábærum samningi við N1 um sérkjör á Britax barnastólum og barnaöryggisbúunaði í bíla. Í samningnum felst að félagsmenn fá 37% afslátt við kaup á Britax barnaöryggisbúnaði með því að framvísa gildu félagsskírteini í verslunum N1.

Óhætt er að segja að þetta tilboð sé með því allra besta sem sést hefur. Þetta FÍB tilboð gildir í öllum verslunum og afgreiðslustöðum N1 um allt landið. Einungis þarf að framvísa félagsskírteini í FÍB með gildum ársmiða á bakhlið.

Britax bílstólar eru afar vandaðir og hafa komið vel út úr öryggisprófunum. Börnin eru dýrmætasta gjöfin sem okkur getur nokkru sinni hlotnast og með þessum afsláttarsamningi eiga foreldrar þess kost að kaupa öryggisbúnað í hæsta gæðaflokki fyrir börnin sín á hóflegu verði. Munið að þegar barnabílstóll er keyptur er mikilvægt að gæta að því að stóllinn hæfi þyngd og stærð barnsins. Ekki er nóg að fara bara eftir aldri barnsins þegar stóll er keyptur, heldur einnig og ekki síður stærð þess og þyngd. Á vef FÍB undir liðnum Umferðaröryggi er að finna nánari upplýsingar varðandi val og staðsetningu barnabílstóla.

Hægt er að skoða stólaúrvalið hjá N1 hér.