500 nýir Mercedes-Benz fólksbílar á árinu

Bílaumboðið Askja afhenti á föstudaginn fimmhundraðasta Mercedes-Benz fólksbílinn á árinu. Þetta er metsala hjá Mercedes-Benz á Íslandi á einu ári.

Jónas Karlesson er eigandi 500. Mercedes-Benz bílsins sem er af gerðinni GLE Plug-in Hybrid en GLE er annar söluhæsti Mercedes-Benz bíllinn á árinu á eftir GLC. Jónas og eiginkona hans Sigrún Brynja Hannesdóttir eru að eignast sinn fyrsta Mercedes-Benz og eru að vonum hæstánægð með bílinn enda glæsilegur í alla staði. Þau eru búsett á Akureyri en þar er Höldur viðurkenndur þjónustuaðili fyrir Mercedes-Benz.

,,Við erum mjög ánægð að hafa afhent 500 bíla á árinu. Mercedes-Benz er áfram söluhæsta lúxusbílamerkið á Íslandi eins og undanfarin ár en á þessu ári hefur verið sérlega mikil aukning í sölu á Plug-in Hybrid bílum” segir Ásgrímur Helgi Einarsson, sölustjóri Mercedes-Benz fólksbíla hjá Öskju.

Af þeim 500 Mercedes-Benz fólksbílum sem Askja hefur selt á árinu eru 122 þeirra í Plug-in Hybrid útfærslu. Mercedes-Benz er þannig þriðja söluhæsta merkið í Plug-in Hybrid flokknum á Íslandi.

Askja er í öðru sæti yfir þau bílaumboð á Íslandi sem selt hafa flesta Plug-in Hybrid bíla á árinu en fyrirtækið er einnig með umboð fyrir Kia.

Á myndinni er Jónas Karlsson og eiginkona hans Sigrún Brynja Hannesdóttir fegnu þegar þau fengu afhentan fimmhundruðasta Mercedes-Benz bíls ársins.