74% bifreiðaeigenda á Akureyri aka um á negldum hjólbörðum

Síðastliðin fimm ár hafa að meðaltali 74% bifreiðaeigenda á Akureyri ekið um á negldum hjólbörðum og hefur notkun aukist verulega undanfarin tvö ár. Þetta kemur frá á vefsíðu Akureyrarbæjar.

Á Akureyri mælist svifryk of oft yfir heilsuverndarmörkum og eiga nagladekk sinn þátt í því. Þau valda auk þess hávaða og slíta malbiki margfalt hraðar en önnur dekk, sem hefur í för með sér aukinn viðhaldskostnað.

Á Akureyri, og einkum á hálendisvegum í nágrenninu, getur verið flughált og jafnvel þungfært á veturna og því er mikilvægt að vera á góðum og öruggum dekkjum. Ýmsar tegundir vetrarhjólbarða eru í boði sem hafa mismunandi áhrif á umhverfið. Má þar nefna loftbóludekk, harðkornadekk, harðskeljadekk, heilsársdekk með djúpu mynstri og nagladekk.

Fram kemur ennfremur að íbúar eru beðnir um að hugleiða og meta fyrir sig hvort nagladekk séu nauðsynleg eða hvort mögulegt sé að velja aðrar tegundir hjólbarða og stuðla þannig að bættum loftgæðum og minni hávaða á Akureyri.