Á ellefta þúsund Evrópubúa hafa pantað Leaf í forsölu

Frá því að Nissan fór að bjóða nýju kynslóð rafmagnsbílsins Leaf í forsölu í Evrópu fyrir tveimur mánuðum hafa rúmlega tíu þúsund manns lagt inn pöntun, þar af rúmlega sjötíu hér á landi síðan BL hóf forsölu 4. desember. Afhending fyrstu bílanna hefst í febrúar á meginlandinu og í mars hjá BL.

Loftur Ágústsson, markaðsstjóri BL, segist ekki muna eftir jafn miklum áhuga á bíl í forsölu á Íslandi frá því að hann byrjaði að starfa í bílagreininni fyrir margt löngu.

„Nei, ég man satt að segja ekki eftir svona miklum áhuga á bíl sem fólk hefur ekki séð nema á myndum og þar af leiðandi ekki prófað. En auðvitað er Leaf orðinn vel þekktur hér enda meira en 1100 slíkir í umferðinni og sífellt fleiri sem þekkja hann af eigin reynslu,“ segir Loftur. BL hefur tryggt sér bíla úr fyrstu framleiðslulotunni sem afhentir verða í mars og eru þeir nú þegar allir seldir.

Árið 2010, þegar fyrsta kynslóð Leaf kom á markað var um að ræða fyrsta 100% rafbílinn fyrir almennan markaði. Á sama tíma héldu aðrir helstu bílaframleiðenda heims sig við þróun tvinntækninnar þar sem sprengihreyfillinn gegndi enn meginhlutverki orkuþarfar bílanna á móti rafmótornum sem var að ryðja sér til rúms í bílaframleiðslu.

Á þeim átta árum sem liðin eru frá því að að Leaf kom á markað hafa neytendur fylgst með stórstígum framförum í tækni rafbíla. Fleiri og fleiri sjá þá nú sem ákjósanlegan kost fyrir sig enda hefur sala rafbíla fimmfaldast frá árinu 2012.