Aðstoð FÍB alveg ómetanleg

Nemendum í 10. bekk við Foldaskóla í Grafarvogi stendur til boða valgrein við skólann sem nefnist fornám til ökunáms. Í þessu fagi er farið yfir öryggi og ýmsa þá þætti sem tengjast bílum. Hjörtur Gunnar Jóhannesson, starfsmaður FÍB, aðstoðar þar. Hann heimsótti Foldaskóla og fræddi nemendur um allt sem snýr að dekkjaskiptum. Einnig fór fram kennsla í því hvernig maður tengir startkapla og gefur straum.

Kristín Helgadóttir Ísfeld, námsráðgjafi við Foldaskóla og ökukennari, kennir fornám ökunáms við skólann. Kristín segir að skólinn hafi boðið upp á þessa valgrein í sex ár en þessi þáttur ökunámsins, að kenna nemendum að skipta um dekk, hefur verið í boði í tvö ár.

 Unglingarnir sérlega áhugasamir

  „Það er mikil ánægja með þessa valgrein í skólanum og unglingarnir eru sérlega áhugasamir. Þeir læra ekki sérstaklega um þennan þátt í ökunáminu sjálfu og því er alveg nauðsynlegt að búa yfir þekkingu sem snýr að dekkjaskiptum og öðrum þáttum. Það er alveg ómetanlegt að geta leitað til FÍB og fá félagð til að veita unglingunum leiðsögn. Aðstoð FÍB í þessum efnum er stórkostleg,“ sagði Kristín Helga.

  Kristín Helga sagðist viss um að þessi valgrein við skólann væri komin til að vera.

  „Það sé afar brýnt að geta veitt nemendunum leiðsögn í þessum efnum,  svo mikilvægt að geta bjargað sér sjálfur þegar vandamál koma upp,“ sagði Kristín Helga Ísfeld.