Akstur undir áhrifum áfengis og vímuefna er dauðans alvara

230. fundur Umferðarráðs haldinn þann 10. desember 2009 hvetur alla vegfarendur til að sýna fyllstu árvekni í umferðinni.  Sérstaklega bendir Umferðarráð öllum á að akstur undir áhrifum áfengis eða annarra vímuefna er helsta orsök alvarlegra umferðarslysa. 

Á aðventunni og um jólin gera margir sér dagamun þar sem áfengi er haft um hönd.  Umferðarráð minnir á að þeir sem neyta áfengis og fíkniefna eru óhæfir til að stjórna ökutæki og að slíkur akstur er dauðans alvara.  Almenningssamgöngur, ganga eða leigubíll kosta minna en mannslífin.