Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér

Vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, mun standa yfir í sumar. Af því tilefni var ritað undir viljayfirlýsingu þess efnis og kynnt til leiks eftirtektarverð skilti á morgunverðarfundi um öryggi starfsfólks við vegavinnu sem Vegagerðin stóð fyrir þriðjudaginn 7. júní 2022.  

Vegagerðin, í samstarfi við Samgöngustofu, Ríkislögreglustjóra og verktakafyrirtækin Ístak, Colas Ísland hf. og Borgarverk efna til vitundarátaksins: Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, sem felst í að beita sér fyrir aukinni vitund vegfarenda um öryggi starfsfólks við vegavinnu.

Hönnuð hafa verið áberandi og öðruvísi skilti sem afhjúpuð voru á morgunverðarfundi um öryggi starfsfólks á vinnusvæðum þann 7. júní. Skiltin verða notuð við framkvæmdasvæði á vegum landsins í sumar meðan átakið stendur yfir.

Vegavinna í nálægð við þunga og hraða umferð getur verið stórhættuleg þeim sem við hana vinna. Því eru vinnusvæði ávallt vel merkt og hraði tekinn niður með umferðarskiltum. Því miður hefur það ekki alltaf borið árangur og hraði í gegnum vinnusvæði er oft mikill sem eykur mjög hættu fyrir starfsfólk. 

Á morgunverðarfundinum sagði Grétar Einarsson, verkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Selfossi, frá sinni reynslu af því að vinna á vegum úti, og frá þeim fjölmörgu skiptum þar sem hurð hefur skollið nærri hælum á vinnusvæðum í nálægð við þunga umferð. Víkingur Guðmundsson, sérfræðingur hjá Vegagerðinni, lýsti því hvaða reglur gilda um merkingu vinnusvæða og Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas Ísland hf., sagði frá reynslu fyrirtækis síns af öryggi við vegavinnu, en Colas Ísland hf. hefur mikinn metnað fyrir því að auka öryggi starfsfólks síns.

Mynd: Óskar Sigvaldason, Hjálmur Þorsteinn Sigurðsson, Sigþór Sigurðsson, Bergþóra Þorkelsdóttir, Kristín Helga Markúsdóttir og Ólafur Örn Bragason.