Álagningu vanrækslugjalda vegna skoðunar ökutækja frestað um mánuð

Álagningu vanrækslugjalds þann 1. apríl vegna skoðunar ökutækja verður frestað um einn mánuð til 1. maí vegna COVID-19 faraldursins. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur staðfest ákvörðunina með reglugerð sem birt verður í Stjórnartíðindum á morgun, 26. mars. 

Gripið er til frestunarinnar vegna aðstæðna í samfélaginu í tengslum við útbreiðslu Covid-19 kórónaveirunnar. Frestunin stuðlar m.a. að því að fólk geri sér ekki sérstaka ferð, oft um langan veg, til að fá skoðun. Einnig hefur nokkrum skoðunarstöðvum þegar verið lokað um óákveðinn tíma vegna ástandsins.

Álagningin þann 1. apríl hefði tekið til eigenda þeirra bifreiða sem hafa 1 í endastaf og hefðu því átt að láta skoða ökutæki sín þá. Álagningin tekur einnig til þeirra sem fóru með ökutæki í skoðun í janúar sl. og áttu að fara í endurskoðun skv. ákvörðun skoðunarmanns ekki síðar en í lok febrúar. Þessari álagningu verður því frestað til 1. maí.