Aldrei meiri umferð í maí á Hringvegi

Umferðin á Hringvegi í maí jókst talsvert mikið eða um tæp tíu prósent. Aldrei hefur mælst jafn miki umferð í maí og núna. Met frá árinu 2019 var slegið. Reikna má með að umferðin í ár aukist um meira en þrjú prósent og gangi það eftir verður met umferðarár í ár af því er fram kemur í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Umferð jókst talsvert í nýliðnum maí miðað við sama mánuð á síðasta ári, eða um 9,7%.  Þessi mikla aukning varð til til þess að nýtt met var slegið í umferð um lykilteljara á Hringvegi, en gamla metið var frá árinu 2019. Nýja metið reyndist  6,7% yfir því gamla.

Hlutfallslega jókst umferð mest um Austurland eða um 47,6% en minnst jókst hún í grennd við höfuðborgarsvæðið eða um 4,7%.

Aukning varð í öllum mælisniðum og einstaka sniði jókst umferð, hlutfallslega mest við Hvalsnes í Lóni, á Austurlandi, eða um 129,5%. Að svipaðri stærðargráðu var mælisnið á Mýrdalssandi en þar jókst umferðin um rúmlega 123,2%.

 

 

 

 

 

 

 

Frá áramótum hefur umferðin nú aukist um 3,1% sé hún borin saman við sama tímabil á síðasta ári.

Mest hefur umferð aukist um Austurland eða um 29,2% en umferð hefur dregist saman í kringum höfuðborgarsvæðið eða um 1,4% frá áramótum miðað við sama tímabil á síðasta ári.

Samanburður á umferð eftir vikudögum
Nú hefur uppsöfnuð umferð aukist í öllum vikudögum ef frá eru taldir mánudagar en á þeim dögum mælist 3,3% samdráttur. Mest hefur umferð aukist á miðvikudögum eða um 7,0%.

Mest hefur verið ekið á föstudögum en minnst á laugardögum. Nú stefnir í að umferð geti aukist um rúm 3%, ef hún hegðar sér líkt og í meðalári. Gangi þessar horfur eftir endar heildaraukningin í nýju umferðarmeti, eða svo til á pari við umferðina árið 2018 og rúmu 1% yfir metárinu 2019.