Allar bílgerðir Jaguar Land Rover verða með rafmótor

Í samræmi við stefnu sína um að bjóða alla bílgerðir Jaguar Land Rover með rafmótor frá og með 2020 hefur verksmiðja fyrirtækisins í Castle Bromwich í Bretlandi nú verið undirbúin fyrir breytingarnar því 2021 kemur flaggskip Jaguar, stóri lúxusbíllinn XJ, á markað sem 100% rafbíll, en framleiðslu sama bíls með núverandi drifrás hefur verið hætt.

Jaguar XJ hefur verið á markaði í rúma fimm áratugi og á þeim tíma gengið í gegnum átta kynslóðaskipti samfara stöðugri tækniþróun og breyttum straumum og stefnum í bílgreininni. 

Þessi rúmgóði og stóri lúxusbíll hefur frá upphafi verið hannaður, þróaður og framleiddur í Bretlandi og fluttur út til meira en 120 landa um allan heim frá árinu 1968. Rafknúin útgáfa XJ mun að stórum hluta byggja á fagurfræðilegri árfleifð forvera síns ásamt rómuðum afköstum og munaði.

Hönnuðir og verkfræðingar nýja bílsins verða þeir sömu og tryggt hafa Jaguar I-Pace helstu verðlaun í bílaheiminum vestanhafs og austan á umliðnum mánuðum.

Ákvörðun stjórnenda Jaguar Land Rover um að hrinda í framkvæmd ákvörðun um endurnýjun lífdaga Jaguar XJ mun tryggja áframhaldandi störf þúsunda starfsmanna fyrirtækisins í Bretlandi ásamt því sem ákvörðunin markar nýtt skref í orkuskiptum fyrirtækisins.

Í janúar var tilkynnt um nýja framleiðslulínu fyrir nýja drifrás rafhlöðu og rafmótors (EDU) sem sett verður upp í verksmiðjunni í Midlands auk þess sem verksmiðjan þar verður stækkuð og endurbætt á ýmsan máta.

Ný samsetningarmiðstöð Jaguar Land Rover fyrir rafhlöður, sem tekur til starfa í Hams Hall á næsta ári, mun afkasta 150 þúsund framleiðslueiningum á ári og verður hún sú fullkomnasta sinnar tegundar í Bretlandi.

Ásamt vélaverksmiðjunni (EMC) í Wolverhampton munu verksmiðjurnar tvær bera hitann og þungann af framleiðslu næstu kynslóða bíla frá Jaguar Land Rover sem allar verða boðnar með rafmótor, ýmist sem tvinnbílar eða hreinir rafbílar.

Í samræmi við þá skuldbindingu Jaguar Land Rover að framleiða rafknúna bíla í Bretlandi er það jafnframt nauðsynlegt að mati fyrirtækisins að stjórnvöld og aðrir bílaframleiðendur í Bretlandi taki höndum saman um að setja á stofn afkastamikla rafhlöðuverksmiðju í landinu sem framleiði minni, afkastameiri og ódýrari rafhlöður en nú eru fáanlegar á markaðnum.

Þessi mikilvægu skref munu einnig styðja við og efla núverandi aðfangakeðju og gera Bretland óháðara þeim erlendu mörkuðum sem nú þjónusta breska bílaiðnaðinn.