Ályktun stjórnar Umferðarráðs

Sumarið er tími ferðalaga og mikillar umferðar á vegum landsins.  Framundan eru mjög umferðarþungar helgar og stórar útihátíðir.  Með tilkomu Landeyjarhafnar má gera ráð fyrir aukinni umferð á Suðurlandsvegi, og þá ekki síst ungs fólks á leið til og frá Vestmanneyjum um verslunarmannahelgina.

Þessi árstími hefur oft reynst erfiður í umferðinni og má nefna að í ágúst mánuði árið 2006 létust 8 einstaklingar í umferðarslysum, þar af 5 sem voru 26 ára eða yngri. 

Mikill árangur hefur náðst í fækkun umferðarslysa á undanförnum árum, en þrátt fyrir það verðum við að halda vöku okkar og missa ekki sjónar á því að aldrei má slaka á í umferðaröryggisstarfinu.  Ísland má alls ekki við mannfórnum í umferðinni.  Við verðum að taka höndum saman og gera allt sem í okkar valdi stendur til að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og limlestingar í umferðinni.

Stjórn umferðarráðs beinir því til vegfarenda að sýna sérstaka aðgát á ferðalögum, aka varlega og sýna tillitssemi.  Þannig bætum við öryggi í umferðinni og vinnum saman að því að allir komi heilir heim.