Fréttir

Hætta á að holur myndist í þessu tíðarfari

Þegar þíða kemur í kjölfar frosts og kulda eða þegar miklir umhleypingar eru eykst hættan á því að holur myndist í bundnu slitlagi, malbiki og klæðingu. Holur hafa nú þegar verið að koma fram á götum höfuðborgarsvæðisins á síðustu dögum. Eins og dæmin hafa sannað í gegnum tíðina hafa bíl­ar orðið fyr­ir stór­tjóni við að aka ofan í djúp­ar hol­ur. Öku­menn þurfa að gæta varúðar til að skemma ekki bíla sína.