Árgjald FÍB 2015

Á stjórnarfundi í FÍB, Félagi íslenskra bifreiðaeigenda nýlega, var samþykkt að árgjald félagsins árið 2015 verði kr. 7.260.

Árgjaldið milli ára hækkar þannig um 300 kr. frá gjaldinu eins og það var 2014. Þrátt fyrir hækkunina, sem tekur gildi frá og með 1. janúar, er gjaldið samt sem áður áfram umtalsvert lægra en meðalárgjald sl. 20 ára. Mjög veruleg raunlækkun varð á gjaldinu þegar gengi krónunnar hrundi í kjölfar efnahagshrunsins 2008.

Aðild að FÍB veitir félagsmönnum margvíslegan efnahagslegan ávinning og stuðning. Meðal þess er endurgjaldslaus aðgangur að þjónustu FÍB Aðstoðar á helstu þéttbýlissvæðum landsins. Félagsmenn hafa einnig endurgjaldslausan aðgang að ráðgjöf lögmanns og tæknimanns í ágreiningsmálum sem tengjast kaupum og rekstri bifreiða, svo sem viðhaldi og tryggingum. Þá fá þeir aðgang að mjög víðtæku þjónustu- og afsláttakerfi, bæði hér heima en einnig um allan heim.

Félag íslenskra bifreiðaeigenda var stofnað 6.maí 1932. Félag íslenskra bifreiðaeigenda er hagsmunafélag bifreiðeigenda. Meðal baráttumála sem FÍB er stöðugt og daglegt eftirlit með eldsneytisverði á heimsmarkaði og hvernig verðlagning hér á landi samrýmist því.