Askja ehf innkallar 40 Mercedes-Benz bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 40 Mercedes-Benz bifreiðar af tegundunum, C-Class, GLC og EQG.

Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á því að raflögn fyrir rafmagnsstýrið hafi ekki verið framleitt samkvæmt kröfum framleiðanda. Skemmdir í raflögnum geta valdið truflunum á rafmangnsstýrinu.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.