Askja hefur sölu á smart #1

Bílaumboðið Askja hefur hafið sölu á smart en um er að ræða línu af rafbílum frá þessum þekkta framleiðanda. Bíllinn var frumsýndur hér á landi í vikunni.

Nýr smart #1 var fyrst kynntur í Berlín á síðasta ári og vakti þá mikla athygli. Komu bílsins á markað hefur verið beðið með mikilli eftirvæntingu en sú bið er nú loks á enda. smart fólksbíllinn er mörgum kunnuglegur en hann á rætur sínar að rekja til ársins 1991 þegar Mercedes-Benz og úraframleiðandinn Swatch hófu samstarf. Markmið þeirra var að hanna umhverfisvæna og hagkvæma bíla sem hentuðu fyrir borgarakstur. Úr varð smart smábíllinn sem vakti mikla athygli á sínum tíma fyrir einstakt útlit og hagkvæmni í rekstri.

Árið 2019 hóf Mercedes-Benz samstarf við einn stærsta bílaframleiðanda Kína, Geely og úr varð nýr nýtt fyrirtæki smart. Fyrsti bíllinn er alrafmagnaður og heitir #1 og er hann afar rúmgóður og mun stærri en fyrri kynslóðir smart. Hann er framsækinn og nútímalegur með allt að 420 km drægni og 1600 kg dráttargetu og kemur þar að auki fjórhjóladrfinn og því spennandi valkostur fyrir Íslendinga sem vilja rafbíl. Í haust er væntanleg sérstök Brabus útfærsla sem er yfir 400 hestöfl.

Við hönnun á smart #1 unnu alþjóðlegt hönnunarteymi Mercedes-Benz og rannsóknar- og þróunarteymi smart náið saman að því að kanna hið fullkomna jafnvægi á milli hönnunar innanrýmis og ytra byrðis og heildarafkasta bílsins. Afraksturinn er stílhreint og straumlínulagað útlit með lítilli loftmótstöðu.