Askja innkallar 122 Mercedes-Benz Sprinter bifreiðar

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 122 Mercedes-Benz Sprinter bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að skinna losni sem tengist bremsupedala. Komið það fyrir munu bremsuljósin loga stöðugt.

Þá hefur Neytendastofu einnig borist tilkynning frá Bílaumboðinu Öskju ehf  um að innkalla þurfi 15 Mercedes-Benz CLA, GLA, A-Class og B-Class bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að slag getur komið í stýrisöxulinn. Innköllun felst í skoðun og umskiptum ef þurfa þykir.

Viðkomandi bifreiðareigandum verður tilkynnt um innköllunina  bréfleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.