Askja innkallar Mercedes Benz Sprinter

Neytendastofu hefur borist tilkynning frá Öskju ehf  um að innkalla þurfi 7 Mercedes-Benz Sprinter bifreiðar. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er á að bakkljós virki ekki sem skyldi vegna hugbúnaðarvillu.

Viðkomandi bifreiðareigendum verður tilkynnt um innköllunina  símleiðis. 

Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.