Ástand Vesturlandsvegar um Kjalarnes er með öllu óásættanlegt

Bæjarstjórn Akraness hefur undanfarin ár margsinnis vakið athygli samgönguyfirvalda á brýnni nauðsyn þess að auknum fjármunum verði varið til endurbóta á Vesturlandsvegi um Kjalarnes til að auka umferðaröryggi og greiða för. 

Í ályktun bæjarstjórnar Akraness frá því í gær segir að ljóst er að ástand Vesturlandsvegar um Kjalarnes er með öllu óásættanlegt og öryggi vegfarenda er teflt í hættu. Daglega fara um veginn þúsundir bíla og sífellt eykst fjöldi óöruggra vegfarenda sem fara um veginn.

,,Það voru því sár vonbrigði að við nýlega úthlutun á fjögurra milljarða króna viðbótarframlagi ríkisins til brýnna vegaframkvæmda skuli Sigurður Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, enn og aftur horfa framhjá hrópandi framkvæmdaþörf á Vesturlandsvegi um Kjalarnes,“ segir í ályktuninni frá bæjarstjórninni.

Í ályktuninni segir ennfremur að bæjarstjórn Akraness krefst þess að samgönguyfirvöld, svari ákalli Skagamanna og bregðist tafarlaust við hættulegu ástandi Vesturlandsvegar um Kjalarnes og tryggi að í nýrri samgönguáætlun verði lokið við tvöföldun Vesturlandsvegar frá Hvalfjarðargöngum til Reykjavíkur innan þriggja ára.