Aukin loftmengun veldur áhyggjum

Mikil  umræða  á  Bretlandseyjum síðustu  misseri  vegna  aukinnar  loftmengunar  hefur  ýtt  við  stjórnvöldum  þar  í  landi  sem  hyggjast  leggja  til  að  notkun  bensín-  og  dísilbifreiða  verði  takmörkuð  frá  árinu  2040.  Settir  verða  á  stofn  sjóðir  til  að  bæjarfélög  á  Bretlandseyjum  geti  með  auðveldari  hætti  tekist  á  við  þennan  vanda  sem  stjórnvöld  líta  orðið  mjög  alvarlegum  augum.

Loftmengun  hefur  aukist til  muna hin síðustu  ár  í  London  sem og  öðrum  stórborgum  á  Bretlandi en talið  er að tug þúsundir manna láti lífið á  hverjum  ári sem  rekja megi til útblástur frá  bílum.

Til  að  vinna  bug  á  þessum  vanda  eru  rafmagnsbílar  ein  lausnin  en  salan  á  þeim  var ekki mikil í fyrst.  Nú  horfir  til  betri  tíma  í  þeim  efnum  en  verðið  á  umhverfisvænum bílum  hefur  lækkað  mikið  sem  gefur  almenningi  meiri  möguleika  að  fjárfesta  í  slíkum  bílum.  Frönsk  stjórnvöld  hafa líst því yfir að  þau  ætluðu  að  fara  að  fordæmi  Breta  og hvetja jafnframt Frakka til kaupa á umhverfisvænum bílum.

Í  Frakklandi  eru  dísilknúnir  bílar  yfirgnæfandi  hluti  alls  bílaflotans  sem  þar er  í  umferð.  Frönsk  stjórnvöld  gripu  til  þess  ráðs  fyrir  nokkrum  árum  að  fækka  dísilbílunum  mjög  með aukinni skattheimtu vegna útblásturs-  og öragnamengun  sem  telst  heilsuspillandi.